Back to search

University of Iceland

Þú uppskerð eins og þú sáir : mikilvægi vaxandi hugarfars í stærðfræðinámi

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er lokaverkefni mitt til B.Ed. prófs í grunnskólakennslu með áherslu á yngri barna kennslu. Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á mikilvægi vaxandi hugarfars í stærðfræðinámi og hvernig kennari getur stuðlað að vaxandi hugarfari nemenda sinna í stærðfræðinámi. Byrjað er á að útskýra hugtökin vaxandi og fastmótað hugarfar og hvers vegna það er mikilvægt fyrir nemendur að þróa með sér vaxandi hugarfar. Því næst er farið yfir hlutverk kennarans og hvað hann getur gert til að stuðla að vaxandi hugarfari. Farið verður yfir hvernig stærðfræðikennslunni mætti hátta og hvernig vinnubrögð kennarinn gæti ýtt undir. Að lokum verður svo farið yfir einkenni verðugra stærðfræðiverkefna og gefin dæmi um nokkur slík. Niðurstöður verkefnisins sýna hvað vaxandi hugarfar skiptir miklu máli fyrir árangur nemenda þegar kemur að stærðfræðinámi. Kennarinn gegnir þar stóru hlutverki með kennslu sinni, viðhorfi og verkefnum og því er mikilvægt að hann geti náð að laða fram áhuga nemenda sinna á stærðfræði og viðhaldið honum svo nemendur öðlist trú á eigin hæfni og tileinki sér vaxandi hugarfar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrafnhildur Benediktsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36753
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36753

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrafnhildur Benediktsdóttir 1991-. Þú uppskerð eins og þú sáir : mikilvægi vaxandi hugarfars í stærðfræðinámi. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36753