University of Iceland
Stafrænir helgisiðir: Áhrif stafrænnar þróunar á skilgreiningu mannfræðinga á helgisiðum
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessarar ritgerðar er einfaldur og samanstendur af eftirfarandi fjórum staðreyndum um mannfræði og sammannlegar upplifanir: (1) Þróun stafrænnar mannfræði hefur opnað fyrir fjölmörg tækifæri til frekari rannsókna á stafrænum heimi. (2) Þrátt fyrir skort á góðri skilgreiningu á helgiathöfnum innan mannfræðinnar er mögulegt að nota þær tilraunir til skilgreininga sem eru okkur aðgengilegar til að rannsaka stafrænar helgiathafnir líkt og veraldlegar helgiathafnir. (3) Stafrænar helgiathafnir eru á allan hátt jafnar veraldlegum athöfnum í virði og virkni. (4) Brýn þörf er á frekari rannsóknum vegna þróunar kórónuveirunnar, inn í hinn stafræna heim og upplifunum þátttakenda á stafrænum helgiathöfnum. Fjallað verður um stafræna mannfræði og áhrif tæknilegra framfara á skilgreiningu mannfræðinga á því hvað telst sem athöfn (e. ritual). Hugtakið trú (e. religion) er einungis nefnt til að aðskilja frá fyrra hugtaki. Farið verður yfir sögu mannfræðilegra skilgreininga á helgiathöfnum og þróun þessara hugmynda með tilkomu tækninnar. Ég tek þetta saman í sex liðum sem notaðir verða til að skilgreina helgiathafnir og er greining mín byggð á þessum sex liðum. Áhersla er lögð á að gera grein fyrir hvers vegna ekki hefur tekist að komast að sameiginlegri niðurstöðu varðandi skilgreiningu meðal fræðimanna. Þátttakendur stafrænna athafna skynja þær sem raunverulegar upplifanir. Ég sýni fram á að stafrænar athafnir eru í alla staði jafngildar sambærilegum athöfnum sem færu fram annars í raunheimum. Þessar athafnir innihalda millibilsástand (e. liminal stage) sem býður upp á áhrifagjarna tilhneigingu þátttakenda. Greiningin mín sýnir að stafrænar athafnir geta verið þess virði að þær séu rannsakaðar af fræðimönnum. Rauði þráðurinn, sem lesanda er boðið að fylgja, fjallar t.d. um gagnrýni á þjóðhverfar skilgreiningar mannfræðinga frá fyrri tímum sem uppfylla ekki skilyrði þeirra rannsakenda sem hafa veraldarvefinn og það sem honum fylgir sem rannsóknasvið sitt. Með tilkomu COVID-19 og áhrifum þeirrar veiru á samkomur fólks bæði til skemmtunar og samkenndar, hefur þetta umræðuefni öðlast nýtt gildi og er nú afar mikilvægt að leysa fljótt til að auka skilning okkar á aðlögun mannkyns að breyttum tímum. Lykilorð: millibilsástand, stafræn mannfræði, stafrænar athafnir, COVID-19, helgiathöfn
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hildur Snjólaug Bruun Garðarsdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/35267
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/35267