University of Iceland
Huliðsgámur, sýn í annan heim: Notendaprófanir í sýningargerð með blönduðum veruleika
Abstract
dc:description.abstractÞetta verkefni er þrjátíu eininga lokaverkefni mitt í Hagnýtri menningarmiðlun. Hér mun ég fjalla um Huliðsgám (Liminal World) sem er sýningarrými inni í fjörtíu feta gámi með nýjustu tækni í blönduðum veruleika (e.mixed reality). Huliðsgámur er í eigu Jaðarmiðlunar ehf, sem er lítið nýsköpunarfyrirtæki sem ég ásamt þremur öðrum konum stofnuðu árið 2016. Jaðarmiðlun fékk styrk frá Tækniþróunarsjóði Rannís til að útbúa upplifunarsýningu inni í gámi með því markmiði að prófa nýja tækni inni í sýningarrými. Sýningin felur í sér fimm mínútna senu þar sem landvætturinn Rispa býður þér inn í hellinn sinn en hrafninn hennar Flóki er glysgjarn og hrekkjóttur og þarf því að fylgjast vel með því hvað hann gerir. Hér mun ég fjalla um fyrstu notendaprófanir á upplifun fólks sem fór í gegnum sýninguna. Allir þátttakendur þurfa að setja á sig búnað: Magic Leap One gleraugu sem gefur þeim sýn í veröld Rispu. Síðan voru allir látnir svara spurningalista um hvernig upplifun þeirra hefði verið með það að markmiði meðal annars að fá fram hvort frásögn (e.storytelling) hefði haft áhrif á upplifunina. Þátttakendum var því skipt í tvo hópa þar sem annar hópurinn fékk frásögn um senuna inni í Huliðsgám, áður en þau hittu landvættinn Rispu og hrafninn Flóka, en hinn hópurinn fékk ekki neinar upplýsingar og vissu því ekki hvað þau ættu von á að sjá og upplifa. Spurningarnar snéru m.a. að sýningarrýminu og karakternum Rispu til að fá viðbrögð við hvort upplifunin virðist vera raunveruleg og trúverðug og í samhengi við sanngildi (e.authenticity). Í fræðilegum hluta verkefnisins er farið yfir helstu hugtök og fjallað um menningararf, sanngildi og velt uppi spurningum hvort tæknin í blönduðum veruleika sé að rekast saman við upplifunina. Einnig hvort trúverðug og vönduð framsetning frekar en sannleikur sé aðalatriði. Niðurstöður úr notendaprófunum sýndu fram á að sýningin í heild sinni vakti góð viðbrögð en þó eru nokkur atriði sem þarft er að laga og þá sérstaklega er kemur að tæknibúnaði. Upplifun í heild sinni vakti lukku þrátt fyrir smá tæknilega örðugleika sem vel er hægt að greiða úr áður en Huliðsgámur verður opnaður fyrir almenning. Rannsóknarspurningar eru: 1) Hvaða kosti hefur blandaður veruleiki við miðlun á sýningum? 2) Hvaða áhrif hefur tæknin (blandaður veruleiki) á upplifun sýningargesta? 3) Hvernig nýtist miðlunarleiðin við að kynna íslenskan menningararf, vel eða illa? Hefur hún jákvæð eða neikvæð áhrif á sanngildi sagnanna sem unnið er með?
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sólrún Ingvadóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32685
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32685