University of Iceland
„Er maður þá að bregðast þessu barni?“ Þjónusta sveitarfélaga fyrir seinfæra foreldra
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er greint frá rannsókn sem hafði það að markmiði að kanna með hvaða hætti sveitarfélög landsins veita seinfærum foreldrum stuðning. Markmið rannsóknar var að fá fram reynslu barnaverndarstarfsmanna af þjónustu sem sveitarfélög landsins bjóða upp á fyrir seinfæra foreldra. Notast var við blandaða aðferð í rannsókninni, þar sem bæði eigindlegum og megindlegum aðferðum var beitt. Tekin voru viðtöl við þrjá barnaverndarstarfsmenn og símaviðtöl við 25 stjórnendur innan málaflokksins hjá sveitarfélögum. Niðurstöður sýna að margt er vel gert og starfsmenn lýsa áhuga á að veita góða þjónustu. Flest sveitarfélög geta þó gert betur í þjónustu við seinfæra foreldra líkt og lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, með síðari breytingum nr. 37/2018 og lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 gera ráð fyrir. Þannig sýna niðurstöður að um þriðjungur sveitarfélaga veitir seinfærum foreldrum ekki þjónustu nema mál þeirra séu unnin sem barnaverndarmál. Auk þess kom fram að meirihluti sveitarfélaga notar ekki sértækt námsefni við kennslu og þjálfun seinfærra foreldra. Niðurstöður sýna jafnframt að skortur er á þekkingu starfsmanna á gagnlegri nálgun í vinnu með seinfærum foreldrum. Barnaverndarstarfsmenn telja sig skorta sértæka fræðslu og ráðgjöf um hvernig best er að vinna með foreldrunum og þörf sé á handleiðslu og hagnýtum leiðbeiningum við vinnslu slíkra mála. Þá sýna niðurstöður að veruleg þörf sé á sértæku námsefni fyrir seinfæra foreldra til að auka foreldrafærni þeirra.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Lilja Rós Agnarsdóttir 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32504
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32504