Back to search

University of Iceland

Rödd barnsins: Þátttaka barna í forsjár- og umgengnismálum

Abstract

dc:description.abstract

Börn eru sjálfstæðir einstaklingar með eigin réttindi. Meðal þeirra réttinda sem börn eiga að hafa er réttur þeirra til þátttöku í málum er þau varða. Undanfarin ár hefur samráðsréttur barna og foreldra verið styrktur og áhersla lögð á að unnið sé út frá barnamiðaðri nálgun, þar sem litið er á börn sem einstaklinga með sérþekkingu á eigin aðstæðum og skoðanir sem eru jafn mikils virði og hinna fullorðnu. Þegar foreldrar skilja ber þeim að hafa samráð við barn sitt áður en ákvarðanir varðandi það eru teknar. Rannsóknir sýna að börn hafa þörf fyrir að vera upplýst um stöðu mála, fá að tjá sig og að á þau sé hlustað þegar teknar eru ákvarðanir er varða líf þeirra. Rannsóknir sýna jafnframt að börn eru sáttari við niðurstöðuna þegar þau fá að vera þátttakendur. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á upplifun og reynslu uppkominna skilnaðarbarna, í tengslum við þátttöku þeirra í forsjár- og umgengnismálum. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð og var spurningalistakönnun send út með rafrænum hætti til nemenda í grunnnámi við Háskóla Íslands. Alls tóku 278 uppkomin skilnaðarbörn þátt í rannsókninni en þar sem þýðið er óþekkt stærð var ekki hægt að reikna út hlutfall þeirra sem svöruðu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þátttakendur hafi ekki verið nægilega vel upplýstir í kjölfar skilnaðar foreldra sinna og upplifðu margir óvissu um framtíð sína. Með hækkandi aldri jókst þátttaka og vægi sjónarmiða þátttakenda í ákvarðanatökum eftir skilnað en tækifæri þeirra til þátttöku voru að einhverju leyti takmörkuð. Það virðist þó vera að meirihluti foreldra hafi leitast við að gefa þátttakendum tækifæri í samræmi við þroska þeirra. Rúmlega helmingur þátttakenda var sáttur við tækifærin sem fengust til áhrifa. Lykilorð: Forsjá, umgengni, réttindi barns, þátttaka barns, samráð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Diljá Ólafsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31975
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31975

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Diljá Ólafsdóttir 1991-. Rödd barnsins: Þátttaka barna í forsjár- og umgengnismálum. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31975