Back to search

University of Iceland

Skipting og sameining fasteigna utan skipulagðra þéttbýlissvæða

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni var fjallað um ferlið sem ráðast þarf í þegar fyrirhugað er að skipta fasteignum eða sameina þær, með áherslu á framkvæmdina utan skipulagðra þéttbýlissvæða. Meginmarkmið ritgerðarinnar var að lýsa gildandi rétti en einnig var lagt upp með það að skoða hvað mætti betur fara í ferlinu. Í upphafi var fjallað almennt um fasteignir og sérstök áhersla lögð á hugtakið fasteign. Þá var vikið að formlegum skilyrðum fyrir stofnun fasteigna á grundvelli laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001. Einnig var fjallað um álitamál varðandi eignaraðild að útskiptum og sameinuðum fasteignum sem og stöðu óbeinna eignaréttinda. Því næst var fjallað um í hvaða farveg skipting og sameining fasteigna fer hjá stjórnvöldum og voru skipulagslög nr. 123/2010 og jarðalög nr. 81/2004 skoðuð í því sambandi. Að svo búnu var fjallað um skipti fasteignar í sérstakri sameign. Engar almennar reglur er að finna í íslenskum rétti um skipti eigna í sérstakri sameign en í framkvæmd hefur verið stuðst við 20. kapitula kaupabálks Jónsbókar. Einnig var fjallað um sérreglur sem finna má í landskiptalögum nr. 46/1941 sem taka á skiptum á óskiptu sameignarlandi tveggja eða fleiri jarða. Því næst var vikið að skiptingu og sameiningu fasteigna í fjöleignarhúsum á grundvelli laga um fjöleignarhús nr. 26/1994. Að lokum voru niðurstöður dregnar saman og tillögur settar fram um hvernig mætti bæta og einfalda ferlið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Hrönn Karlsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31694
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31694

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Hrönn Karlsdóttir 1992-. Skipting og sameining fasteigna utan skipulagðra þéttbýlissvæða. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31694