University of Iceland
„Við viljum ekki skilja eftir sviðna jörð af starfsmönnum sem hafa hætt vegna kulnunnar“. Upplifun mannauðsstjóra á kulnun starfsmanna
Abstract
dc:description.abstractKulnun hefur jafnan verið skilgreint sem ástand sem kemur fram vegna langvarandi streituvalda í lífi einstaklinga, hvort sem er í einkalífi hans eða starfi, og hefur áhrif á starfsgetu einstaklingsins. Markmið rannsóknarinnar var að skoða upplifun mannauðsstjóra á þátttöku sinni í greiningu á kulnun og aðgerðum til að koma í veg fyrir hana. Í því fólst meðal annars að kanna viðhorf mannauðsstjóra til einstakra fyrirbyggjandi aðgerða, svo sem heilsueflingu starfsmanna og eftirliti með fjarvistum, ásamt því að að skoða hvernig skipulagsheildir aðstoða starfsmenn sem tjá einkenni kulnunnar. Rannsóknin byggði á eigindlegri aðferðarfræði þar sem gagnasöfnun fór fram í hálfopnum viðtölum. Viðmælendur voru sjö talsins og starfa allir sem stjórnendur á mannauðssviði. Í viðtölunum var leitað eftir svörum við eftirfarandi rannsóknarspurningum: (1) Hver er upplifun mannauðsstjóra á eigin hlutverki við greiningu á kulnun og aðgerðum til að sporna gegn henni? (2) Hvert er mat mannauðsstjóra á því hvaða hópur starfsmanna sé í mestri áhættu á að verða fyrir kulnun? Samkvæmt niðurstöðunum er hlutverk mannauðstjóra að sinna fræðslu og þjálfun og efla þannig starfsmenn við að takast á við streituvaldandi þætti starfsins. Þá er þeirra hlutverk að stuðla að heilsueflingu innan skipulagsheildarinnar og tryggja þægilegt og gott starfsumhverfi þannig að starfsmenn telji sig skuldbundna skipulagsheildinni. Mat viðmælenda var að ákveðnir hópar væru í aukinni áhættu að finna fyrir einkennum kulnunar og því sé nauðsynlegt að hafa aukið eftirlit með þeim. Mikilvægt er að stjórnendur aðstoði starfsmenn sem tjá einkenni kulnunar við að greina hvað veldur ástandinu og hvernig bæta megi úr því. Ef slíkar aðgerðir skila ekki árangri er mikilvægt að leita aðstoðar utankomandi sérfræðinga til þess að hjálpa viðkomandi starfsmanni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðlaug Helga Helgadóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/30403
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/30403