Back to search

University of Iceland

Að semja tvímálaorðabók: Um tilraun til þess að semja íslensk-japanska orðabók

Abstract

dc:description.abstract

Lokaverkefni þetta er til BA-prófs í Íslensku sem öðru máli við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Markmiðið með verkefninu er að leggja grundvöll að tvímálaorðabók fyrir fullorðna japanska byrjendur í íslensku, sérstaklega þá sem vilja læra tungumálið sjálfir. Móðurmál mitt, höfundar þessarar ritgerðar, er japanska. Ástæðan fyrir því að lagt var af stað í þetta verkefni er sú að hvorki er til raunveruleg íslensk-japönsk orðabók né íslensk orðabók sem ætluð er byrjendum. Verkefnið er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða aðferðir, tilraunir og niðurstöður um vinnslu á íslensk-japönsku orðabókinni, hins vegar eru sýnd sýnishorn af henni. Flettiorð sem fjallað er um í þessari ritgerð eru aðeins þau sem hefjast á A. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er fjallað um hvert orðaforði orðabókarinnar er sóttur, aðferðir við að búa til orðalistann og sum orðanna sem þóttu umhugsunarverð á meðan unnið var að vali og frágangi á flettunum. Þá er leitast við að draga fram á hvaða grundvelli orðabókin byggist. Þar kemur í ljós hve einsmáls- og tvímálaorðabækur á íslensku, orðtíðnilistar á íslensku og Mörkuð íslensk málheild (MIM) hafa miklu hlutverk að gegna. Þess ber líka að geta að í athugasemdum við sum uppflettiorðanna er sýnt að hluta til hvernig fletturnar eru samdar. Í síðari hluta ritgerðarinnar eru drögin að íslensk-japönsku orðabókinni sýnd ásamt dæmum um flettur. Leitast er við að feta í fótspor hefðbundinna íslenskra orðabóka og tvímálaorðabóka á japönsku. Tekið skal fram að íslensk-japanska orðabókin er ekki aðeins hugsuð sem orðabók fyrir byrjendur í íslensku heldur gæti hún einnig verið vegvísir að því hvernig á að nota íslenskar orðabækur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Shohei Watanabe 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29439
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29439

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Shohei Watanabe 1991-. Að semja tvímálaorðabók: Um tilraun til þess að semja íslensk-japanska orðabók. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29439