University of Iceland
„Við erum einhvern veginn alltaf undir smásjá“ : hver er reynsla kennara af sjálfræði í starfi sínu og hvað hefur áhrif á það?
Abstract
dc:description.abstractÞann 17. apríl 2015 hélt Kennarasamband Íslands (KÍ) ársfund sem bar yfirheitið „Ímynd og orðræða kennara“. Í ályktun fundarins segir m.a.: „Brýnt er að lyfta kennarastarfinu til vegs og virðingar í samfélaginu“. Fundurinn varð kveikjan að þessari rannsókn, að rannsaka reynslu kennara af sjálfræði í starfi sínu og hvort hún hafi hugsanleg tengsl við fagmennsku og fagvitund kennara ásamt ímynd og orðræðu kennara. Markmiðið með rannsókninni er að varpa ljósi á hvernig kennarar upplifa sjálfræði sitt í starfi, hvað hefur áhrif á þá upplifun og hvaða augum þeir telja aðra líta sig og störf sín. Enn fremur verður athugað hvort tengsl séu á milli sjálfræðis þeirra í starfi og fagmennsku. Rannsóknin er eigindleg og var gagna aflað með viðtölum við sex starfandi grunnskólakennara á unglingastigi, sem höfðu umsjón með bekk. Kennararnir koma úr tveimur skólum, annar er á höfuðborgarsvæðinu en hinn á landsbyggðinni. Félagslegar mótunarkenningar voru notaðar við gagnagreiningu ásamt kenningum um fagmennsku, fagvitund og sjálfræði. Niðurstöður leiddu í ljós að kennurunum hafði öllum einhverntíma fundist sjálfræði sínu í starfi ógnað en af mismunandi ástæðum þó. Kennararnir virtust ekki vera nógu öruggir um fagmennsku sína og virtist það hafa áhrif á upplifun þeirra. Virðing var stórt þema í rannsókninni, eins konar regnhlífarhugtak yfir alla þætti sem rætt var um. Mikilvægt er að efla fagmennsku kennara þannig að þeir séu meðvitaðri um hana og um hvað hún snýst. Það styrkti þá mikið og kæmi frekar í veg fyrir að þeim fyndist sjálfræði sínu í starfi ógnað.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hjördís Kvaran Einarsdóttir 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28527
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28527