Back to search

University of Iceland

Lykilmælikvarðar og umhverfisáhrif í íslensku fiskeldi. Flokkun ólíkra fiskeldiskerfa

Abstract

dc:description.abstract

Ýmsar aðferðir eru notaðar til að meta umhverfisleg áhrif vöru. Lögð hefur verið áhersla á að meta heildstætt umhverfisáhrif með samræmdri aðferðafræði þar sem horft er til heildarlífsferils vöru en slíkar greiningar krefjast umfangsmikillar gagnasöfnunar og flókinnar aðferðafræði. Gerðar voru einfaldaðar vistferilsgreiningar fyrir íslensk fiskeldisfyrirtæki og felst einföldunin í að nota færri gögn en í fullri vistferilsgreiningu. Notast var við hugbúnað sem nýlega var þróaður til að auðvelda fyrirtækjum að sýna fram á stöðu sína í umhverfismálum með vistferilsgreiningum (SENSE, www.senseproject.eu). Markmiðið var að bera saman umhverfisleg áhrif ólíkra fiskeldiskerfa á Íslandi og að setja fram niðurstöður sem gætu nýst sem viðmið til samanburðar við önnur fyrirtæki. Einnig að skoða hvernig nýta megi umhverfisáhrif og frammistöðuvísa eins og notkun fóðurs, orku og vatns, ásamt magni frárennslisvatns og úrgangs til að lýsa og flokka mismunandi eldiskerfi. Einkennandi fyrir sjókvíaeldi var mikil díselnotkun og næringarefnaauðgun sjávar, en fyrir landeldi mikil rafmagnsnotkun, einkum þar sem borað var eftir vatni. Að öðru leyti voru umhverfisáhrif fiskeldiskerfa fyrst og fremst tilkomin vegna fóðurnotkunar og voru þau svipuð á milli fiskeldiskerfa. Þá var gerð viðhorfskönnun á meðal þeirra sem starfa í sjávarútvegs-og fiskeldisfyrirtækjum og spurt um þætti er lúta að umhverfislegri vitund. Niðurstöður voru bornar saman við svipaða könnun sem send var út árið 2010 og sýndu að umhverfisvitund hefur aukist á síðustu fimm árum. Lítil þekking er á vistferilsgreiningum í fiskeldisfyrirtækjum en fyrirtæki hafa áhuga á að geta metið umhverfisleg áhrif framleiðslunnar á einfaldan hátt til að miðla um frammistöðu og bera saman við aðra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnhildur Eva Guðmundsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23086
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23086

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnhildur Eva Guðmundsdóttir 1983-. Lykilmælikvarðar og umhverfisáhrif í íslensku fiskeldi. Flokkun ólíkra fiskeldiskerfa. 2015. http://hdl.handle.net/1946/23086