Back to search

University of Iceland

Stefnumótun, samfélagsábyrgð og siðferði: Viðhorf stjórnenda íslenskra fyrirtækja til haghafa og áhrif lífsgilda og markmiða á viðhorf.

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna viðhorf stjórnenda íslenskra fyrirtækja til haghafa í tengslum við stefnumótun og hvort lífsgildi stjórnenda og áherslur á markmið fyrirtækjareksturs hafi áhrif á viðhorf til haghafa. Í fræðilegu yfirliti ritgerðarinnar er meðal annars skoðað eðli fyrirtækja og fjallað um viðskiptasiðfræði og helstu kenningar hennar ásamt haghafakenningunni sem umgjörð um stefnumiðaða samfélagsábyrgð fyrirtækja á siðferðilegum grunni. Rannsóknin er gerð að erlendum fyrirmyndum. Upprunalega hugmyndin fékkst hjá Aigle og félögum en einni er notast við þætti frá Posner (2010) og Spiller (2000). Spurningalisti mældi viðhorf stjórnenda til haghafa, mismunandi markmiða fyrirtækja og lífsgilda og innihélt 34 spurningar sem skiptust svo: 1) mikilvægi haghafahópa, 2) mikilvægi markmiða fyrirtækjareksturs, 3) spurningalisti um viðhorf til haghafahópa, 4) spurningar um lífsgildi og 5) bakgrunnsspurningar. Haghafar voru skilgreindir sem aðilar eða hópar sem hafa áhrif á eða verða fyrir áhrifum af starfsemi fyrirtækja og stjórnendur hvattir til að hugsa um þá í tengslum við stefnumótun. Könnun var send á úrtak sem samanstóð af 504 stjórnendum lítilla og meðalstórra íslenskra fyrirtækja og var svarhlutfall 36,1%. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að heildarviðhorf stjórnenda íslenskra fyrirtækja til haghafa er nokkuð hátt og að stjórnendur telji haghafa almennt vera mikilvæga í tengslum við stefnumótun. Hæst meta stjórnendur íslenskra fyrirtækja starfsfólk, viðskiptavini og eigendur, sem bendir til þess að stjórnendurnir meti mest þá haghafa sem eru mikilvægastir framleiðslu fyrirtækjanna en minna þá haghafa sem starfsemi þeirra þó hefur áhrif á. Það er í samræmi við niðurstöður Agle og félaga (1999). Ennfremur leiðir rannsóknin í ljós að lífsgildi stjórnendanna og mismunandi áherslur á markmið fyrirtækjareksturs virðist hafa áhrif á viðhorf þeirra til haghafa, þótt áhrifin séu fremur væg.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynjar Kristinsson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22872
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22872

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynjar Kristinsson 1981-. Stefnumótun, samfélagsábyrgð og siðferði: Viðhorf stjórnenda íslenskra fyrirtækja til haghafa og áhrif lífsgilda og markmiða á viðhorf.. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22872