Back to search

University of Iceland

Kostir þess að nota útikennslu í leikskólum : fræðileg umfjöllun um útikennslu leikskólabarna í tengslum við vefsíðuna Vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans : útikennsla og útinám leikskólabarna í Reykjanesbæ

Abstract

dc:description.abstract

Þessi greinargerð er samin í tengslum við lokaverkefni mitt við Kennaraháskóla Íslands. Verkefnið fólst í því að gera bókina Vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans að rafrænu verki. Vefsíðan er gerð með það í huga að kennarar og aðrir sem kunna að hafa áhuga á útikennslu leikskólabarna, geti skoðað síðuna og fengið hugmyndir og lært af reynslu annarra. Bókin var samin af starfsfólki leikskólans Tjarnarsels í Reykjanesbæ. Efni hennar er afrakstur þróunarverkefnis sem fór fram í leikskólanum á árunum 1995-2000. Í greinargerðinni vildi ég kafa dýpra ofan í vettvangsferðirnar og því kom upp sú spurning hverjir kostirnir væru við að nota útikennslu í leikskólum og hvernig væri hægt að tengja námsvið leikskólans við útikennslu. Ég kafaði dýpra ofan í vettvangsferðirnar, reyndi að átta mig á hver upplifun barnanna væri í þeim og komst að því að þegar börnin könnuðu á sínum forsendum var könnunin hjá þeim dýpri og skilningur á viðfangsefninu jókst. Þegar börn fá að kanna það sem þau hafa áhuga á en ekki það sem kennarinn setur þeim fyrir, eru meiri líkur að þau vilji frekar fara í vettvangsferðir og upplifunin eftir því. Þau urðu meðvitaðri um hvað þau voru að gera.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Theodóra Mýrdal
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/1847
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/1847

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Theodóra Mýrdal. Kostir þess að nota útikennslu í leikskólum : fræðileg umfjöllun um útikennslu leikskólabarna í tengslum við vefsíðuna Vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans : útikennsla og útinám leikskólabarna í Reykjanesbæ. 2008. http://hdl.handle.net/1946/1847