University of Iceland
Áhrif bættra samgangna á lífvænleika samfélaga. Þrjár samgöngubætur: Hvalfjarðargöng, Landeyjahöfn og Héðinsfjarðargöng
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari verður byrjað að fara yfir eina þekktustu kenningu í efnum um bættar samgöngur og áhrif þess. Einnig verður farið yfir nokkrar rannsóknir og niðurstöður þeirra. Kaflarnir þar á eftir skiptast eftir samgöngubótunum sem farið verður yfir í þessari ritgerð og sveitarfélaginu sem þær samgöngubætur eiga að ýta undir lífvænleika í. Landeyjahöfn á t.a.m. ýta undir lífvænleika í sveitarfélaginu Vestmannaeyjum. Helstu þættir sem skoðaðir voru í hverju sveitarfélagi samhliða samgöngubótunum voru atvinnuvegir, mannfjöldi, kynjadreifing, meðalaldur og þróun húsnæðismarkaðs. Markmið þessarar ritgerðar er því að færa rök fyrir því að bættar samgöngur hafi jákvæð áhrif á lífvænleika samfélaga. Rannsóknir leiddu í ljós að íbúaþróun á Akranesi, í Vestmannaeyjum og í Fjallabyggð tók jákvæðum breytingum eftir að bættum samgöngum var komið á. Áhugavert var að sjá að bæði í Vestmannaeyjum og í Fjallabyggð var konum á barnseignaraldri, þ.e. aldrinum 19-35 ára, og börnum á aldrinum 0-5 ára að fækka töluvert á ári fyrir komu samgöngubótanna. Eftir opnun Landeyjarhafnar og Héðinsfjarðarganga hefur fækkun í þessum tveimur aldurshópum tekið enda og er þeim nú að fjölga töluvert í báðum samfélögunum. Atvinnulíf í öllum sveitarfelögunum efldist töluvert og hefur vöxtur ferðaþjónustu átt þar töluverðan hluta, allavega í Vestmannaeyjum og Fjallabyggð. Hvað varðar húsnæðismarkað þá seljast nú fleiri eignir í öllum þremur sveitarfélögunum en seldust áður en samgöngubótunum var komið á. Að mati höfundar má sjá skýr jákvæð merki á lífvænleika sveitarfélagana þriggja. Af þessum niðurstöðum dregur höfundur þar með ályktun um að bættar samgöngur hafi jákvæð áhrif á lífvænleika samfélaga, að minnsta kosti til skamms tíma.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eva Kolbrún Birgisdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/18056
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/18056