Back to search

University of Iceland

Nýbúar, menningarhæfni og hjúkrun. Fræðileg samantekt

Abstract

dc:description.abstract

Nýbúum á Íslandi hefur fjölgað undanfarin ár og voru 25.926 í byrjun árs 2013. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu og réttindi sjúklinga eiga allir landsmenn rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem heilbrigðiskerfi eru fær um að veita hverju sinni. Íslenskar og erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að ekki búa allir þjóðfélagshópar við sama heilsufar. Rannsóknir gefa vísbendingar um að heilsu nýbúa fari hrakandi frá upphafi búsetu í Bandaríkjunum og Kanada. Tilgangur þessarar fræðilegu úttektar er að kanna ójafnræði til heilbrigðis og þá þætti sem skerða aðgengi nýbúa að upplýsingum og þjónustu. Upplýsinga var aflað úr rannsóknum á viðurkenndum gagnagrunnum og úr opinberum gögnum. Niðurstöður sýna að skert heilsulæsi er ein helsta orsök ójafnræðis í heilsufari nýbúa, meðal annars vegna tungumálaörðugleika og skertrar aðlögunar að nýju heilbrigðiskerfi. Hjúkrunarfræðingar eru í góðri stöðu til að greina skert heilsulæsi skjólstæðinga sinna og veita persónumiðaða fræðslu sem byggir á mati á menningarlegum bakrunni og þörfum nýbúa fyrir leiðsögn og stuðning í nýju heilbrigðiskerfi. Bætt heilsulæsi leiðir til aukins aðgengis að upplýsingum og þjónustu og getur minnkað ójafnræði í heilsufari. Niðurstöður varpa ljósi á mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar hljóti þjálfun í menningarhæfri hjúkrun og mati á heilsulæsi skjólstæðinga sinna. Lykilhugtök: Nýbúar, ójafnræði í heilsufari, heilsulæsi, menningarhæfni, hjúkrun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Guðrún Elíasdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15289
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15289

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Guðrún Elíasdóttir 1989-. Nýbúar, menningarhæfni og hjúkrun. Fræðileg samantekt. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15289