Back to search

University of Iceland

„Maður er voðalega smeykur þó hann sé bara sjö og hálfs árs.“ Viðhorf foreldra til ADHD röskunar og áhrifa greiningar

Abstract

dc:description.abstract

Um er að ræða eigindlega rannsókn sem beinist að mæðrum sem eiga barn með ADHD greiningu. Meginmarkmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á upplifun foreldra barna með ADHD, hugmyndir þeirra um röskunina, hvað hafi orðið til þess að barn þeirra var sent í greiningu og þau áhrif sem greiningin hefur haft í lífi þeirra. Gagnaöflun samanstendur af viðtölum við tíu mæður barna með ADHD greiningu, þar sem viðtölin voru í samtalsformi og stuðst við hálfstaðlaðan viðtalsramma. Í niðurstöðum kemur fram að mæðurnar líta á greiningu barns þeirra jákvæðum augum. Þær álita greininguna vera tæki til að aðstoða barn þeirra og koma á bættum skilningi og tillitssemi í garð þess. Mæðurnar hugsa um ADHD röskun út frá líffræðilegum þáttum en leggja þó jafnframt áherslu á að mæta beri öllum börnum á einstaklingsgrundvelli, en ekki hugsa um þau út frá flokkunum. Þær tilgreina bæði jákvæð og neikvæð áhrif greiningar barns þeirra, eins og aukinn skilning annars vegar og staðalmyndir hinsvegar. Meirihluti mæðranna taldi þjónustu við barn þeirra í grunnskóla ekki nægilega og tilgreindu að áhrif greiningar snérust fyrst og fremst að fjölskyldulífi og viðmóti annarra í garð barns þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Jóna Sigurðardóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13002
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13002

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Jóna Sigurðardóttir 1980-. „Maður er voðalega smeykur þó hann sé bara sjö og hálfs árs.“ Viðhorf foreldra til ADHD röskunar og áhrifa greiningar. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13002