Back to search

University of Iceland

Krosseignatengsl í íslensku atvinnulífi og útlán til tengdra aðila

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á eignafléttur í íslensku atvinnulífi og rekja eignarhald aðila, sem voru áberandi í íslensku atvinnulífi misserin fram að falli bankanna og útlán til þeirra. Það var gert að beiðni Rannsóknarnefndar Alþingis. Í umboði hennar hafði höfundur einstakan aðgang að þeim gögnum sem rannsóknin byggir á. Fyrir utan aðgang að lánabókum bankanna gerði aðgengi að hlutafjármiðunum rannsóknina framkvæmanlega enda var það eina safnið af gögnum um eignarhald fyrirtækja á landsvísu sem til var á gagnagrunnsformi. Í rannsókninni er eiginlegt eignarhald í fyrirtækjum reiknað en það er grunnurinn að greiningu áhættuhópa þar sem áhættuhópar, eða hópar tengdra aðila, eru skilgreindir út frá eignarhaldi. Eiginlega eignarhaldið gerir það að verkum, að hægt er koma auga á endaeigendur fyrirtækja á skjótan hátt sem og að auðkenna fyrirtæki sem eru innan marka um lágmarks eiginlegt eignarhald og ættu því að falla í áhættuhópa viðkomandi aðila – óháð eignafléttum. Við greiningu á útlánum til áhættuhópa kom berlega í ljós að á meðal þeirra aðila sem fengu bestu fyrirgreiðsluna hjá bönkunum voru aðilar sem áttu stóra hluti í viðkomandi bönkum. Dæmin sýna að bankarnir höfðu lánað einstaka áhættuhópum umfram þau 25% af eiginfjárgrunni sínum sem heimilt er samkvæmt reglum Fjármálaeftirlitsins. Með þessari aðferðarfræði eru aðilar taldir til áhættuhópa sem bankarnir höfðu ekki talið tengda, ýmist vegna þess að eignarhaldið var of flókið, lágmarkseignarhald var skilgreint hærra eða að eintaklingar hafi metið aðila ótengda á einhvern huglægan hátt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðmundur Axel Hansen 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10232
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10232

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðmundur Axel Hansen 1977-. Krosseignatengsl í íslensku atvinnulífi og útlán til tengdra aðila. 2011. http://hdl.handle.net/1946/10232