Reykjavík University
Hvernig meta íslenskir dómstólar frásögn barna sem sönnun í kynferðisbrotamálum? : rannsókn á dómum Landsréttar sem varða kynferðisbrot gegn börnum
Abstract
dc:description.abstractRannsókn á dómum Landsréttar sem varða kynferðisbrot gegn börnum Í þessari ML ritgerð er fjallað um hvernig íslenskir dómstólar meta frásagnir barna sem sönnun í kynferðisbrotamálum. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á vægi munnlegs framburðar barna við sönnunarmat og greina hvaða sjónarmið og þættir ráða mestu við mat dómstóla á trúverðugleika slíkra frásagna. Í upphafi ritgerðarinnar er gerð grein fyrir þeim lagaákvæðum er varða kynferðisbrot gegn börnum og þeirri sérstöku vernd sem börnum er tryggð, meðal annars í almennum hegningarlögum nr. 19/1940 og alþjóðasamningum. Því næst er gerð grein fyrir sönnunarmati og sönnunarkröfum í sakamálum, með sérstakri áherslu á kynferðisbrotamál gegn börnum. Í kjölfarið er varpað ljósi á þá togstreitu sem getur myndast milli þeirra sönnunarkrafna og verndarsjónarmiða barna sem brotaþola. Meginþungi ritgerðarinnar felst annars vegar í umfjöllun um mat dómstóla á trúverðugleika munnlegs framburðar og hins vegar í ítarlegri dómarannsókn á dómum Landsréttar um þá þætti sem hafa áhrif á framburð barna sem sönnunargagn í kynferðisbrotamálum. Helstu niðurstöður þessarar ritgerðar fela í sér að framburður barns getur haft verulegt vægi við sönnun í kynferðisbrotamálum. Það er einkenni slíkra mála að brot eiga sér að jafnaði stað í lokuðu rými án þess að vitni séu að þeim og er sönnunarstaðan því oft afar erfið. Dómstólar leggja ríka áherslu á að framburður barns sé stöðugur og fái stoð í öðrum gögnum máls. Það er líklegra að það leiði til sýknu ef slíka stoð skortir eða framburður telst óstöðugur og misvísandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að mat á frásögn barna er lykilatriði við úrlausn kynferðisbrotamála og að dómstólar standa frammi fyrir því vandasama verkefni að vega og meta vernd brotaþola annars vegar og réttindi ákærða hins vegar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Lucinda Hulda Fonseca 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53648
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53648