Bifröst University
Hversu skilvirk er jafnréttisstefna Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og hver eru áhrif hennar á samstarfsríki stofnunarinnar?
Abstract
dc:description.abstractTilgangur ritgerðarinnar er að skoða skilvirkni jafnréttisstefnu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og hvaða áhrif, ef einhver, hún hefur á samstarfsríki stofnunarinnar. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að skilvirkni hefur aukist eftir að jafnréttisstefna var tekin upp, að því leyti að hún auðveldar yfirsýn yfir þau verkefni sem takast þarf á við og hlutverk og markmið stefnunnar eru mjög skýr. Á móti kemur að í stefnuna vantar allan tímaramma sem gerir það að verkum að trúverðugleiki og skilvirkni stefnunnar rýrnar. Áhrif stefnunnar á samstarfsríkin eru mjög óljós vegna þess að ekki hefur verið gerð nein úttekt innan ÞSSÍ á stöðu jafnréttismála í samstarfsríkjunum og þeim verkefnum sem stofnunin er með innan þeirra. Kynjasamþætting virðist eiga sér stað í hluta verkefnanna og oft virðist sem að á jafnréttismálefnið sé minnst í framhjáhlaupi. Vegna þess að enginn tímarammi er á stefnunni sjálfri, þá er mjög erfitt að leggja mat á verkefnin og kynjasamþættingu þeirra. Breytingar hafa þó orðið til hins betra. Búið er að samþykkja jafnréttisáætlun ÞSSÍ sem ýtir undir skilvirkni stefnunnar og yfir stendur úttekt á jafnréttismálefnum í Malaví. Skilvirkni stefnunnar fer því batnandi en ennþá er margt sem bæta má.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þórunn Aðalheiður Hjelm 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/7579
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/7579