Back to search

Bifröst University

Heilindi vörumerkja í gervigreindarvæddu markaðsefni

Abstract

dc:description.abstract

Á undanförnum árum hefur notkun skapandi gervigreindar aukist hratt í markaðsstarfi fyrirtækja, meðal annars við framleiðslu texta, myndefnis og persónusniðinna skilaboða. Þessi þróun hefur skapað ný tækifæri til aukinnar skilvirkni og hraðari efnisframleiðslu, en jafnframt vakið spurningar um heilindi, trúverðugleika og traust í samskiptum vörumerkja og neytenda. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvernig markaðsstjórar tryggja heilindi og trúverðugleika vörumerkja við notkun skapandi gervigreindar í markaðsefni og hvaða áhrif þeir telja að heilindi hafi á upplifun neytenda af vörumerkjum. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem framkvæmd voru hálfopin djúpviðtöl við sex viðmælendur, bæði markaðsstjóra og sérfræðinga á sviði markaðssetningar sem hafa reynslu af notkun eða innleiðingu skapandi gervigreindar í markaðsstarfi. Gögn voru greind með þemagreiningu þar sem markmiðið var að greina sameiginleg mynstur og þemu í frásögnum viðmælenda. Helstu niðurstöður benda til þess að markaðsstjórar líti á skapandi gervigreind fyrst og fremst sem stuðningsverkfæri í efnisframleiðslu fremur en sjálfstæða lausn. Mannleg yfirferð og faglegt mat eru talin lykilatriði í að tryggja gæði efnis og samræmi við gildi og sjálfsmynd vörumerkja. Þá kemur fram að gagnsæi í notkun skapandi gervigreindar og samræmi í samskiptum við neytendur skipta miklu máli til að viðhalda trausti og jákvæðri upplifun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vignir Snær Norðdahl 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53839
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53839

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vignir Snær Norðdahl 1999-. Heilindi vörumerkja í gervigreindarvæddu markaðsefni. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53839