Bifröst University
Þvingaðar sameiningar sveitarfélaga - Stjórnskipuleg mörk ríkisvaldsins gagnvart sjálfstjórn sveitarfélaga
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um hvort og að hvaða marki heimilt sé samkvæmt íslenskri stjórnskipan að sameina sveitarfélög með lögum án samþykkis þeirra sjálfra eða íbúa þeirra. Markmið hennar er að afmarka annars vegar það svigrúm sem löggjafanum er veitt samkvæmt 78. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 til að móta skipan sveitarstjórnarstigsins og hins vegar þau mörk sem leiða af stjórnskipunarrétti og stjórnsýslurétti við beitingu slíkra heimilda. Greiningin byggir á túlkun stjórnarskrárákvæða, löggjafar, dómaframkvæmdar og fræðikenninga, með hliðsjón af alþjóðlegum viðmiðum, einkum nálægðarreglu Evrópuréttar og Evrópusáttmála um sjálfstjórn sveitarfélaga. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að íslensk stjórnskipan útiloki ekki að sveitarfélög séu sameinuð með lögum án samþykkis þeirra sjálfra eða íbúa þeirra. Löggjafinn nýtur í því efni víðtæks svigrúms á grundvelli 78. gr. stjórnarskrárinnar. Það svigrúm er þó bundið stjórnskipulegum og stjórnsýslulegum takmörkunum. Ákvarðanir verða að byggjast á málefnalegum og lögmætum sjónarmiðum, samrýmast jafnræðisreglu og uppfylla kröfur meðalhófs, þar á meðal að ekki sé gripið til íþyngjandi úrræða nema þau teljist nauðsynleg í ljósi markmiða. Þá geta málsmeðferð og þátttaka íbúa haft verulega þýðingu við mat á því hvort ákvarðanir samrýmist lýðræðislegum sjónarmiðum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hilma Hödd Berdino Önnudóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53826
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53826