Back to search

Bifröst University

Áhrif leiðtogastíls stjórnenda á sálfræðilegt öryggi og starfsánægju

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangurinn með þessari rannsókn var að varpa ljósi á leiðtogastíl stjórnenda innan ríkisstofnana og kanna sálfræðilegt öryggi hjá starfsfólki ríkisstofnana. Jafnframt var tilgangurinn að skoða hvernig starfsfólk upplifir áhrif leiðtogastíls stjórnenda á sálfræðilegt öryggi og starfsánægju. Framkvæmd var eigindleg rannsókn með viðtölum við tólf einstaklinga sem allir störfuðu innan ríkisstofnana. Helmingur þátttakenda voru stjórnendur og helmingur starfsmenn sem ekki voru í stjórnendastöðu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess, út frá upplifun viðmælenda, að innan ríkisstofnana beiti stjórnendur lýðræðislegum leiðtogastíl og að einnig séu merki um þjónandi forystu og umbreytingarforystu við stjórnun innan ríkisstofnana. Niðurstöðurnar leiddu einnig í ljós að viðmælendur upplifa að sálfræðilegt öryggi á þeirra vinnustað sé gott. Þá benda niðurstöðurnar til þess að þátttakendur upplifi að leiðtogastíll stjórnenda hafi áhrif á sálfræðilegt öryggi og að leiðtogastíll stjórnenda geti bæði haft jákvæð áhrif á starfsánægju og dregið úr starfsánægju. Rannsóknin veitir mikilvæga innsýn í þætti sem snúa að stjórnun og áhrifum á starfsfólk innan ríkisstofnana. Hún eykur skilning á stjórnun og stjórnunaraðferðum sem getur nýst stjórnvöldum og stjórnendum innan og utan ríkisstofnana við ákvarðanatöku, aðgerðir, stefnumótun og fleira. Þá gefur rannsóknin innsýn í upplifun ríkisstarfsmanna á sálfræðilegu öryggi á vinnustað.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erna Guðmundsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53817
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53817

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erna Guðmundsdóttir 1977-. Áhrif leiðtogastíls stjórnenda á sálfræðilegt öryggi og starfsánægju. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53817