Back to search

Bifröst University

Í krafti vatnsins

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um ferli fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar í neðri hluta Þjórsár og þær lagalegu, stjórnsýslulegu, pólitísku og hagsmunatengdu áskoranir sem hafa mótað þróun verkefnisins frá upphafi til dagsins í dag. Hvammsvirkjun hefur verið til umfjöllunar í íslenskri stjórnsýslu í yfir tvo áratugi og einkennst af löngu og flóknu leyfis- og ákvarðanatökuferli þar sem ólík sjónarmið og hagsmunir hafa tekist á. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvaða áskoranir hafa komið upp í ferli Hvammsvirkjunar og hvernig samspil laga, stjórnsýslu, pólitískrar stefnumótunar og hagsmuna ólíkra aðila hefur haft á framgang verkefnisins. Rannsóknin byggir á eigindlegri tilfellarannsókn þar sem stuðst er við greiningu á lögum, stjórnsýslugögnum, úrskurðum stjórnvalda, dómsúrlausnum og opinberri umræðu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ferli Hvammsvirkjunar hefur einkennst af endurteknum kærumálum, ógildingu leyfa og dómsúrlausnum sem hafa leitt til endurmats og endurtekinnar málsmeðferðar. Lagalegar áskoranir tengjast einkum túlkun og beitingu laga um umhverfismat, raforkulaga og laga um stjórn vatnamála. Stjórnsýslulegar áskoranir felast í margþættri aðkomu stjórnvalda, langri tímalengd ferlisins og keðjuverkandi áhrifum stjórnvaldsákvarðana. Pólitískar áskoranir birtast meðal annars í breytilegri stefnumótun og opinberum viðbrögðum við réttaróvissu, á meðan hagsmunatengdar áskoranir endurspegla árekstra milli sjónarmiða um orkunýtingu, náttúruvernd, eignarrétt og samfélagsleg áhrif framkvæmda. Í heild sýnir rannsóknin að ferli Hvammsvirkjunar varpar ljósi á flókið samspil laga, stjórnsýslu, pólitíkur og hagsmuna í stórum innviðaverkefnum og dregur fram þær áskoranir sem slík verkefni geta staðið frammi fyrir í íslensku stjórnskipulagi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Íris Harpa Jónsdóttir 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53814
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53814

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Harpa Jónsdóttir 2003-. Í krafti vatnsins. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53814