Back to search

Bifröst University

Ný listgrein verður til. Ópera á Íslandi 1950-1960. Með áherslu á óperu innan Þjóðleikhússins.

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsókn fjallar um stöðu óperu á Íslandi á árunum 1950–1960, með sérstakri áherslu á stöðu óperu innan Þjóðleikhússins. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvaða þýðingu það hafði fyrir þróun óperu hérlendis og óperusöngvara að nýtt Þjóðleikhús tók til starfa, hvaða væntingar voru um aðstöðu og uppsetningar á vegum þess og hvort þær væntingar stóðust. Þá er einnig fjallað um stöðu óperusöngvara, hvernig aðstæður til náms voru og hvaða tækifæri stóðu lærðum óperusöngvurum til boða hérlendis á þessum tíma. Jafnframt er kannað hvernig óperuuppfærslur, innan sem utan Þjóðleikhússins, mæltust fyrir í þjóðfélaginu. Rannsókn þessi er söguleg rannsókn sem byggir á eigindlegri heimildagreiningu. Rannsóknin byggir á fjölbreyttum heimildum, þar á meðal ævisögum, fundargerðum Þjóðleikhúsráðs, umfjöllunum í dagblöðum, bréfasöfnum og fræðiritum um tónlist og leiklist á þessu tímabili. Fræðilegur rammi rannsóknarinnar byggir einkum á kenningum Pierre Bourdieu um veruhátt (habitus) , svið (field) og auðmagn (capital). Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að með stofnun Þjóðleikhússins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 1950 urðu í fyrsta sinn til aðstæður sem gerðu reglulegan óperuflutning mögulegan hérlendis, á sambærilegan hátt og tíðkaðist víða erlendis. Ópera varð fastur þáttur í menningarlífi þjóðarinnar og ný starfstétt óperusöngvara varð til. Þá bendir rannsóknin til þess að þrátt fyrir að óperan hafi notið mikilla vinsælda innan Þjóðleikhússins þá hafi staða hennar verið veikari en staða leiklistarinnar, bæði varðandi stofnanalegt vægi og starfsskilyrði söngvara. Lykilorð: Bourdieu, óperur, óperettur, Þjóðleikhúsið, Sinfóníuhljómsveit Íslands, tónlistarsaga

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórunn Sigþórsdóttir 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53799
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53799

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórunn Sigþórsdóttir 1969-. Ný listgrein verður til. Ópera á Íslandi 1950-1960. Með áherslu á óperu innan Þjóðleikhússins.. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53799