Bifröst University
„Að skilja tölurnar“ Fjármálalæsi stjórnenda og samspil faglegra og fjárhagslegra sjónarmiða í opinberum rekstri
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á hvernig fjármálalæsi birtist í starfi stjórnenda innan opinberrar stofnunar og hvernig það hefur áhrif á ákvarðanatöku og miðlun fjármálaupplýsinga. Rannsóknin var framkvæmd sem eigindleg tilviksrannsókn þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við átta stjórnendur sem starfa innan sama sveitarfélags. Þátttakendur gegndu mismunandi stjórnunarhlutverkum og höfðu ólíkan bakgrunn hvað varðar menntun og reynslu í rekstri og fjármálum. Gögnin voru greind með þemagreiningu með það að markmiði að fá dýpri skilning á því hvernig stjórnendur skilja fjármál, hvernig þeir nýta fjármálaupplýsingar í starfi sínu og hvernig þeir miðla þeim til undirmanna. Niðurstöður rannsóknar benda til þess að fjármálalæsi sé mikilvægur þáttur í starfi stjórnenda, en það sé ekki alltaf hluti af formlegri menntun þeirra. Margir stjórnendur höfðu menntað sig í sinni faggrein en höfðu síðar tekið við stjórnunarhlutverki sem fól í sér ábyrgð á rekstri og fjármálum. Fjármálalæsi virðist að stórum hluta þróast í gegnum reynslu í starfi, samráð við sérfræðinga og aukna ábyrgð með tímanum. Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að stjórnendur þurfi stöðugt að samræma fagleg sjónarmið og fjárhagslegar kröfur í starfi sínu, sem getur skapað togstreitu í ákvarðanatöku. Einnig kom fram að fjármálalæsi hefur áhrif á ákvarðanatöku, öryggi í starfi og samskipti við starfsmenn, sérstaklega þegar vinna þarf innan fjárhagsramma og samkvæmt reglum opinbers rekstrar. Fjármálalæsi birtist þar ekki aðeins í hæfni til að skilja upplýsingar heldur einnig í getu til að miðla þeim með skýrum og aðgengilegum hætti innan skipulagsheilda. Niðurstöðurnar benda jafnframt til að stuðningur frá stoðsviðum, aðgengi að upplýsingum og markviss fræðsla geti haft áhrif á hvernig fjármálalæsi þróast hjá stjórnendum. Rannsóknin gefur innsýn í hvernig fjármálalæsi birtist í opinberum rekstri og bendir til að aukin fræðsla og skýrari upplýsingagjöf geti stuðlað að betri ákvarðanatöku og ábyrgri meðferð opinbers fjár. Lykilorð: fjármálalæsi, stjórnendur, opinber rekstur, ákvarðanataka, sveitarfélag, eigindleg rannsókn
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingunn Guðmundsdóttir Blöndal 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53798
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53798