Back to search

Bifröst University

Stofnanavæðing listrýma Listahátíðin LungA í ljósi stofnunarhugtaks skipulagsheildafræðinnar

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsókn fjallar um stofnanavæðingu grasrótarstarfsemi í listum með hliðsjón af stofnunarhugtaki skipulagsheildafræða. Fjallað er sérstaklega um þróun Listahátíðarinnar LungA út frá félagsmenningarlegri fyrirbærafræði Williams Ocasio og greiningu hans á þremur þáttum stofnanavæðingar; venjubindingu (e. typification) hlutgervingu (e. objectivation) og setmyndun (e. sedimentation). Samkvæmt greiningu Ocasios eru stofnanir viðtekin og skipulögð kerfi hlutverka og samskipta sem festast í sessi fyrir tilstilli yfirgripsmikilla tengslaneta svokallaðra hlutverkaaðila, þ.e. þeirra sem gegna tilteknum hlutverkum innan hverrar stofnunar. Lykilatriðið í greiningu hans er samþætting fyrirbærafræðilegra sjónarhorna á upplifun einstaklinga af stofnanabundnum hlutverkum við félags– og menningarfræðileg sjónarhorn á ólík svið félagslegrar starfsemi. Þegar litið er á stofnanavæðingu grasrótarmenningarstarfsemi á borð við Listahátíðina LungA út frá greiningu Ocasios er ljóst að formleg og óformleg hlutverkaskipting innan slíkra skipulagsheilda byggir á flóknu samspili einstaklinga þvert á staðbundin og óstaðbundin skipulagssvið. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að það sem hófst með ákalli nokkurra einstaklinga um listahátíð varð að sterkri stofnun fyrir tilstilli markvissrar venjubindingar, hlutgervingar og setmyndunar tiltekinna hlutverka í krafti bæði staðbundinna og óstaðbundinna áhrifaþátta. Stofnunarhugtak Ocasios hefur enn sem komið er ekki verið tekið til umfjöllunar hérlendis, og þó svo að saga og þróun LungA-hátíðarinnar sé vel þekkt þá hefur hún ekki verið greind sérstaklega með verkfærum skipulagsheildafræða. Framlag ritgerðarinnar felst þó ekki aðeins í fræðilegri nýsköpun heldur jafnframt í gerð hugtakalista og myndrænni úrvinnslu meginhugmynda hennar. Þannig felur ritgerð þessi í sér tilraun til þess að skapa form og orðaforða til að einfalda og samræma umræðu um stofnanavæðingarferli listarýma.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hólmfríður Kristín Karlsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53793
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53793

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hólmfríður Kristín Karlsdóttir 1994-. Stofnanavæðing listrýma Listahátíðin LungA í ljósi stofnunarhugtaks skipulagsheildafræðinnar. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53793