Abstract
dc:description.abstractSlysavarnarfélagið Landsbjörg eru ein stærstu samtök sjálfboðaliða á Íslandi með um átján þúsund félaga. Tilgangur félagsins er að bjarga mannslífum og verðmætum og koma í veg fyrir slys. Félagar í björgunarsveitum landsins eru til taks ef eitthvað gerist, nótt sem dag í öllum árstíðum og öllum veðrum. Björgunarsveitir koma ekki að leit og björgun án þess að vera kallaðir til og þegar verið er að leita á landi er það lögregla sem felur björgunarsveit að hefja leit. Í ritgerð þessari er markmiðið að fara nánar ofan í hver réttarstaða björgunarsveitarfólks í aðgerð er sem veitir okkur innsýn í styrkleika og veikleika á núverandi lagaumhverfi. Með því að greina réttarstöðu björgunarsveitafólks er hægt að nýta niðurstöður til þess að bæta lagaumhverfi og fræðslu til handa björgunarsveitarmönnum um réttindi þeirra og skyldur. Markmiðið er einnig að skoða hvort að athafnir björgunarsveitarmanna í aðgerð og athafnir líkt og óþarfa áhættutaka geti haft áhrif á réttarstöðu þeirra. Við skrif ritgerðarinnar var farið yfir hlutverk ríkis og sveitarfélaga við náttúruhamfarir. Þá var farið yfir lagaumhverfi sem snertir störf björgunarsveita á einn eða annan hátt. Komist er að þeirri niðurstöðu að björgunarsveitarfólk í aðgerð sem kallað er til starfa af hálfu stjórnvalds séu opinberir sýslunarmenn í störfum sínum að vissu leyti og njóti því réttinda og skyldna samkvæmt því eftir því sem við á hverju sinni. Þó getur réttarstaða þeirra breyst eftir því hvaða stjórnvald óskar eftir aðstoð þeirra. Þá er einnig komist að þeirri niðurstöðu að áhættutaka eða háttsemi sem sé ekki samkvæmt þjálfun björgunarsveitarfólks gæti haft áhrif á rétt þeirra til bóta verði það fyrir tjóni og jafnvel orðið til þess að það þurfi að bera tjón sitt að einhverju leyti sjálft. Björgunarsveitir – Opinberir sýslunarmenn – Stjórnvöld – Réttarstaða
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Erna Björt Árnadóttir 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53791
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53791