Bifröst University
Friðhelgi og aðgangur að dómstólum: Áhrif friðhelgi erlendra ríkja, sendierindreka og alþjóðastofnana á rétt einstaklinga til aðgangs að íslenskum dómstólum
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um samspil friðhelgi erlendra ríkja, fulltrúa þeirra og alþjóðastofnana annars vegar og réttar einstaklinga til aðgangs að dómstólum hins vegar, með áherslu á íslenskan rétt. Markmiðið er að greina hvernig íslenskir dómstólar og stjórnsýslunefndir hafa leyst úr málum þar sem reynir á slíka friðhelgi, og hvort framkvæmdin samrýmist þróun þjóðaréttar í átt að takmarkaðri friðhelgi og réttinum til aðgangs að dómstólum samkvæmt 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er fjallað um þróun reglna um friðhelgi ríkja, ríkisfulltrúa, sendiráða og alþjóðastofnana í þjóðarétti, auk reglna um aðgang að dómstólum og dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem reynt hefur á samrýmanleika þessara réttinda. Í síðari hluta er íslensk dóma- og stjórnsýsluframkvæmd greind með hliðsjón af þeim alþjóðlegu viðmiðum. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að íslensk framkvæmd, einkum stjórnsýsluframkvæmd, hafi að nokkru leyti dregist aftur úr þróun þjóðaréttar í átt að takmarkaðri friðhelgi. Hefur það leitt til þess að einstaklingar standi í ákveðnum tilvikum eftir án raunhæfs úrræðis til að fá skorið úr réttindum sínum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Brynjar Darri Jónasson 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53790
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53790