Back to search

Bifröst University

Lagaleg mörk gagnkvæmrar upplýsingamiðlunar: Innleiðing 75. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1624 og togstreita almannahagsmuna, persónuverndar og þagnarskyldu

Abstract

dc:description.abstract

Á síðustu árum hefur orðið grundvallarbreyting á því hvernig varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka eru hugsaðar, þar sem aukin áhersla er lögð á gagnkvæma upplýsingamiðlun milli tilkynningarskyldra aðila. Upplýsingaflæði er þannig ekki lengur bundið við samskipti við yfirvöld heldur nær einnig til samskipta milli aðilanna sjálfra. Með tilkomu 75. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1624 er í fyrsta sinn sett fram skýr og formbundin heimild til slíkrar miðlunar, að uppfylltum ströngum skilyrðum. Ákvæðið markar tímamót í evrópskum rétti en vekur jafnframt upp álitaefni um mörk heimilla upplýsingaskipta í ljósi persónuverndar og þagnarskyldu. Markmið rannsóknarinnar er að greina lagaleg áhrif innleiðingar ákvæðisins á íslenskan rétt og meta hvernig jafnvægi verði náð milli þessara sjónarmiða. Rannsóknin bendir til þess að 75. gr. feli í sér tilfærslu frá lóðréttu, einstefnu upplýsingaflæði til yfirvalda yfir í aukna lárétta miðlun milli einkaaðila. Slík þróun getur aukið skilvirkni en kallar jafnframt á skýra lagalega afmörkun. Gildandi íslenskur réttur veitir ekki nægilega skýran grundvöll fyrir slíka miðlun og því er þörf á afmörkuðum lagareglum, studdum eftirliti, til að samræma markmið um skilvirkar varnir gegn fjármálaglæpum og vernd grundvallarréttinda. Hvað varðar persónuvernd bendir rannsóknin til þess að hún sé ekki í andstöðu við slíkar varnir heldur setji þeim skýr mörk og skilyrði sem innleiðingarrammi 75. gr. þarf að taka mið af. Að sama skapi gefur rannsóknin til kynna að þagnarskylda sé síður hindrun en fremur forsenda þátttöku á samstarfsvettvangi, enda búa þeir aðilar sem þegar lúta lögbundinni þagnarskyldu og eftirliti yfir þeim innviðum sem nauðsynlegir eru til að tryggja ábyrga meðferð viðkvæmra upplýsinga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hjördís Ásta Þórisdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53789
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53789

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hjördís Ásta Þórisdóttir 1985-. Lagaleg mörk gagnkvæmrar upplýsingamiðlunar: Innleiðing 75. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1624 og togstreita almannahagsmuna, persónuverndar og þagnarskyldu. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53789