Bifröst University
Áhrif þeirra breytinga sem lög nr. 16/2018 um breytingu á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 hafa á sönnunarmat í kynferðisbrotamálum
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um breytingar á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 sem tóku gildi árið 2018 með lögum nr. 16/2018. Með fyrrnefndri breytingu, var orðalagi 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga breytt á þá vegu að meiri áhersla væri lögð á hvort samþykki brotaþola hafi legið fyrir, án þess að samþykkið hafi verið knúið fram á ólögmætan hátt. Fyrra orðalag lagði meiri áherslu á verknaðaraðferðina sem notuð var við nauðgunina en samþykki brotaþola var ekki í hávegum haft þó það kæmi til skoðunar. Megináhersla ritgerðarinnar er sú að rannsaka viðbrögð dómstóla við breytingunni, þá helst hvort breytingar hafi verið gerðar á sönnunarmati dómstóla eða hvort greinanlegar breytingar megi finna í kjölfarið á lagabreytingunni. Rannsóknin sem fram fer í ritgerðinni er byggð á lögfræðilegri aðferð þar sem stuðst er við réttarheimildir, lögskýringargögn, dómaframkvæmd og viðeigandi lagagreinar. Helsta markmið rannsóknarinnar er því það að greina og meta hvort sönnunarmat dómstóla hafi breyst eftir lagabreytinguna árið 2018. Í kjölfar dómagreiningar má sjá að dómstólar hafa brugðist við lagabreytingunni og dæma í samræmi við hana en ákvæðið sjálft er slíkt ekki verður séð af þessari rannsókn að breytingin hafi leitt til hækkunar á sakfellingarhlutfalli í nauðgunarmálum heldur einungis leggja áherslu á hvaða afstöðu brotaþoli hafði til verknaðarins á þeim tíma sem hann var unninn.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hafþór Bjartur Sveinsson 2003-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53786
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53786