Back to search

Bifröst University

Skyldur bílaumboða samkvæmt lögum nr. 140/2018 - Skyldur bílaumboða til framkvæmdar áreiðanleikakannana sbr. lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um skyldur bílaumboða og bílasala samkvæmt lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, með sérstakri áherslu á framkvæmd áreiðanleikakannana og samræmi þeirra við meginreglur stjórnsýsluréttar. Markmið ritgerðarinnar er að svara þeirri rannsóknarspurningu hvort þær skyldur sem lagðar eru á bílaumboð og bílasölur samkvæmt lögunum samræmist meðal annars meðalhófsreglu, rannsóknarreglu, jafnræðisreglu og andmælareglu stjórnsýsluréttar. Í ritgerðinni er fjallað um lagagrundvöll peningaþvættisvarna, stöðu tilkynningarskyldra aðila samkvæmt lögunum og framkvæmd eftirlits og viðurlaga af hálfu ríkisskattstjóra. Sérstök áhersla er lögð á greiningu ákvarðana ríkisskattstjóra gagnvart bílaumboðum og bílasölum þar sem reynt hefur á skyldur um áreiðanleikakannanir, áhættumat, varðveislu gagna og skimun gagnvart þvingunaraðgerðum. Þá er jafnframt fjallað um sáttagerðir, opinbera birtingu viðurlaga og áhrif þeirra á réttaröryggi og atvinnufrelsi tilkynningarskyldra aðila. Við vinnslu ritgerðarinnar var stuðst við hefðbundnar lögfræðilegar rannsóknaraðferðir, lögskýringargögn, dóma og ákvarðanir stjórnvalda. Jafnframt var aflað upplýsinga frá stjórnendum bílaumboða um framkvæmd laganna í reynd og þær áskoranir sem fylgt hafa innleiðingu þeirra. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að skyldur samkvæmt lögum nr. 140/2018 samræmist að meginstefnu til meginreglum stjórnsýsluréttar, enda byggja þær á lögmætum markmiðum um vernd fjármálakerfisins og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Hins vegar leiðir umfjöllunin í ljós að framkvæmd laganna getur verið matskennd og skapað réttaróvissu fyrir tilkynningarskylda aðila, sérstaklega hvað varðar umfang áreiðanleikakannana og ákvörðun stjórnvaldsviðurlaga. Ritgerðin bendir því til þess að þörf sé á skýrari leiðbeiningum, auknum fyrirsjáanleika og samræmdari framkvæmd eftirlits til að tryggja fullt samræmi við kröfur stjórnsýsluréttar og réttaröryggis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helgi Ragnar Gunnarsson 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53781
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53781

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helgi Ragnar Gunnarsson 1995-. Skyldur bílaumboða samkvæmt lögum nr. 140/2018 - Skyldur bílaumboða til framkvæmdar áreiðanleikakannana sbr. lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53781