Back to search

Bifröst University

Markaðshneigð íslenskra sundlauga

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna markaðshneigð íslenskra sundlauga og bera saman samkeppnisstöðu almenningssundlauga og einkarekinna baðlóna. Rannsóknin byggði á blandaðri aðferð þar sem eigindleg rannsókn sem fólst í viðtölum við stjórnendur nokkurra vel valinna sundlauga lagði grunn að megindlegri rannsókn þar sem sundgestir voru beðnir um að svara stuttri spurningakönnun. Fræðileg nálgun byggði á kenningum um markaðshneigð og sjö markaðsráðum þjónustu: verði, vöru, kynningu, dreifingu, áþreifanlegum þáttum, fólki og ferlum. Helstu niðurstöður sýna að þrátt fyrir að sundlaugar mæti væntingum þátttakenda betur en baðlónin og hafi nokkuð góða markaðshneigð, þá eru þær mun veikari í stefnumótandi víddum markaðshneigðar. Þátttakendur megindlegrar rannsóknar skynjuðu sundlaugar sem hægvirkar og minna færar um að bregðast við samkeppni og nýsköpun. Þetta leiðir til þess að baðlónin ná forskoti með sérstökum aðbúnaði og upplifun (vara), en sundlaugar viðhalda betur viðskiptatryggð með auknu aðgengi (dreifing). Niðurstöðurnar styðja við kenninguna um markaðshneigð en sýna fram á að skortur á stefnumótandi þáttum hjá íslenskum almenningssundlaugum, þrátt fyrir góða heildareinkunn markaðshneigðar, getur skaðað samkeppnishæfni þegar nýir og öflugir keppinautar koma fram á sjónarsviðið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pálína Dagný Guðnadóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52159
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52159

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pálína Dagný Guðnadóttir 1989-. Markaðshneigð íslenskra sundlauga. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52159