Bifröst University
Hefur Alþingi misst völd til framkvæmdarvaldsins og orðið ráðherraræði að bráð?
Abstract
dc:description.abstractValdahlutföll milli löggjafarvalds og framkvæmdarvalds hafa lengi verið til umræðu í stjórnmálafræði, sérstaklega í litlum lýðræðisríkjum þar sem tengslin eru náin. Á Íslandi hefur verið bent á að Alþingi hafi í auknum mæli orðið undir gagnvart framkvæmdarvaldinu, einkum ráðherrum sem hafa mikil áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku. Þetta hefur vakið spurningar um hvort hefðbundið þingræði hafi veikst og hvort íslenska stjórnskipanin beri merki ráðherraræðis. Í ritgerðinni er spurt: „Hefur Alþingi misst völd til framkvæmdarvaldsins og orðið ráðherraræði að bráð?“ Byggt er á kenningum um valdaskiptingu, þingræði og ráðherraræði, auk greiningar á stjórnarskrá, þingskjölum, fræðiritum og fjölmiðlum. Einnig voru tekin hálfopin viðtöl við sérfræðinga og lykilaðila úr stjórnmálum. Niðurstöðurnar benda til þess að ráðherraræði birtist að nokkru leyti í íslenskri stjórnskipan, einkum þegar þingið nýtir ekki fullnægjandi eftirlits- og frumkvæðisheimildir sínar. Hins vegar hafa breytingar á starfsháttum Alþingis einnig styrkt stöðu þingsins. Ráðherraræði á Íslandi má því skilja sem aðstæðubundið jafnvægi frekar en algert yfirráð framkvæmdarvaldsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anton Kristinn Guðmundsson 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52158
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52158