Back to search

Bifröst University

Ein Sýn, sameiginleg sýn? Áhrif endurmörkunar á helgun starfsmanna

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um upplifun starfsmanna af endurmörkun Sýnar hf. og hvaða sálfélagslegu þættir skýra helgun þeirra í kjölfar breytinganna. Markmiðið er að kanna hvernig samsömun starfsmanna við skipulagsheildina, skýrleiki markmiða og væntinga í breytingaferlinu og upplifun af óvissu eða mögulegu broti á sálfræðilega samningnum tengjast helgun. Rannsóknin er megindleg og byggir á rafrænum spurningalista sem lagður var fyrir starfsfólk Sýnar. Notast var við staðlaða kvarða: Utrecht Work Engagement Scale til að mæla helgun, Organizational Identification Scale til að mæla samsömun, OCRBS til að meta skýrleika og Psychological Contract Breach Scale til að meta upplifun af óvissu eða samningsbroti. Niðurstöður sýna að þátttakendur skora að jafnaði hátt á helgun og upplifa tiltölulega sterka samsömun við skipulagsheildina. Skýrleiki mældist í meðallagi en óvissa fremur lítil, þó með talsverðum breytileika innan hópsins. Í einfaldri aðhvarfsgreiningu höfðu allar frumbreytur marktæk tengsl við helgun, en í fjölþættu líkani hélt aðeins samsömun marktækum áhrifum. Þetta gefur til kynna að samsömun gegni mikilvægu hlutverki í sálfræðilegri merkingarsköpun starfsmanna á móti því hvernig þeir bæði skilgreina breytingarnar og hvernig þær hafa áhrif á orku og þátttöku í starfi. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um að endurmörkun hafi ekki aðeins ytri áhrif heldur snertir hún innri upplifun starfsmanna og hvernig þeir skilgreina eigin tengsl við skipulagsheildina. Til að viðhalda og efla helgun starfsmanna í slíkum breytingum virðist skipta máli að styrkja samsömun, veita skýrar og trúverðugar upplýsingar og draga eins og kostur er úr óvissu. Með slíkum aðgerðum má skapa jákvæða og merkingarbæra upplifun starfsmanna af breytingum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karítas Sól Kristjánsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52136
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52136

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karítas Sól Kristjánsdóttir 1999-. Ein Sýn, sameiginleg sýn? Áhrif endurmörkunar á helgun starfsmanna. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52136