Bifröst University
Þvinguð aðild eða raunhæft úrræði ? Innlausnarréttur hluthafa vegna framsalshamla
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um innlausnarrétt hluthafa samkvæmt 3. mgr. 15. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög og 3. mgr. 23. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Markmið hennar er að meta hvort þessi úrræði sem eiga að tryggja hluthöfum útgönguleið þegar samþykktir takmarka framsal hluta séu raunhæf og virk í framkvæmd eða hvort beiting þeirra leiði til lagalegs tómarúms sem takmarka vernd hluthafa. Rannsóknin byggir á lögfræðilegri aðferð, þar sem lagatexti, lögskýringargögn og dómaframkvæmd eru greind með hliðsjón af réttarheimildum íslensks réttar og þeim mannréttinda- og Evrópuréttarlegum sjónarmiðum sem hafa áhrif á túlkun ákvæðanna. Þá er íslensk löggjöf borin saman við reglur nágrannaríkja til skýra sérstöðu innalausnarúrræðisins. Niðurstöður benda til þess að þótt innlausnarrétturinn sé skýr í lögum sé virkni hans ekki ávallt tryggð í framkvæmd. Dómaframkvæmd hefur mótast af ströngum form- og tímaskilyrðum sem ekki koma fram í lagatexta, svo sem kröfu um nákvæma tilkynningu um framsal og eftirfylgni innan tiltekins frests. Þetta getur gert úrræðið óaðgengilegt eða óframkvæmanlegt fyrir hluthafa, sérstaklega þegar samskipti eru óskýr eða tafir verða á afgreiðslu stjórnar. Rannsóknin sýnir að skortur á fyrirsjáanleika og skýrum verkeflum getur rýrt réttaröryggi og skapað aðstæður þar sem hluthafar sitja fastir í félagi gegn vilja sínum. Slíkt samræmist illa sjónarmiðum um vernd eignarréttar og félagafrelsis samkvæmt stjórnarskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu. Heildarniðurstaðan er sú að innlausnarrétturinn sé mikilvægt en ekki fullkomlega virkt úrræði í framkvæmd og að þörf sé á skýrari reglusetningu til að tryggja markmið ákvæðanna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Íris Hrund Sigurðardóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52135
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52135