Back to search

Bifröst University

Þjálfun í ákvarðanatöku viðbragðsaðila með áherslu á lögreglu

Abstract

dc:description.abstract

Ákvarðanataka lögreglu undir álagi hefur áhrif á starfsöryggi lögreglumanna, öryggi almennings, og traust til lögreglu. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig ólíkar þjálfunaraðferðir móta ákvarðanatöku lögreglumanna í streituvaldandi aðstæðum og hvaða atriði í þjálfun styðja hraða, gæði og réttmæti ákvarðana. Notast var við blandaða rannsóknarnálgun: lýsandi spurningakönnun sem send var út til starfandi lögreglumanna á Íslandi og þemagreind hálfopin viðtöl við átta lögreglumenn og þjálfara innan lögreglunnar. Megindleg gögn voru greind með lýsandi tölfræði og opin svör borin saman við niðurstöður úr eigindlegum gögnum. Eigindleg gögn voru greind með þemagreiningu og niðurstöður síðan samþættar. Helstu niðurstöður benda til þess að lifandi, raunhæfar æfingar, stigvaxandi álag og kerfisbundin endurtekning skili mestum ávinningi fyrir faglega dómgreind og viðbragð. Svarendur og viðmælendur telja jafnframt að formleg streituþjálfun og ígrundun eftir æfingar og aðgerðir fái of lítið rými í núverandi þjálfunarfyrirkomulagi. Þeir leggja til markvissari og samræmdari þjálfun, fleiri og fjölbreyttari raunhæfar æfingar, betri aðstöðu og að embættin hafi öll þjálfara í fullu starfi. Niðurstöðurnar styðja að formleg líkön og leiðarvísar, til dæmis OODA-hringurinn og önnur ákvarðanatökukerfi, nýtist best með markvissri kennslu og æfingum sem þjálfa innsæi og mynstragreiningu. Stuðningur yfirmanna, skýr endurgjöf og þjónandi forysta virðast lykilforsendur þess að brúa bilið milli þjálfunar og frammistöðu á vettvangi. Í heild benda niðurstöðurnar til þess að íslensk lögregluþjálfun gæti eflt ákvarðanatöku undir álagi með samsettu kerfi. Þ.e.a.s. stigvaxandi, lifandi æfingum með raunverulegu áreiti, kerfisbundinni ígrundun og að lokum endurgjöf, ásamt reglulegri endurmenntun og innleiðingu aðferða til streitustjórnunar. Slík nálgun er líkleg til að styðja við hraða, örugga og réttmæta ákvarðanatöku í daglegu starfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hjörtur Hjartarson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52124
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52124

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hjörtur Hjartarson 1981-. Þjálfun í ákvarðanatöku viðbragðsaðila með áherslu á lögreglu. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52124