Back to search

Bifröst University

Hvernig speglast starfsánægja hjúkrunarfræðinga í þeirri þjónustu sem þeir veita innan heilbrigðisþjónustunnar?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða þættir hafa áhrif á starfsánægju hjúkrunarfræðinga og hvernig hún speglast í þjónustu sem þeir veita innan heilbrigðisstofnanna. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við fjóra hjúkrunarfræðinga á mismunandi aldri og með ólíka starfsreynslu. Viðtölin voru þemagreind til að draga fram helsta mynstur og sameiginlega þætti. Helstu niðurstöður sýndu að hjúkrunarfræðingar upplifa sig almennt ánægða í starfi. En það voru helst innri þættir líkt og gott starfsumhverfi og tilfinningin í því að vera að gera gagn sem hafði mest áhrif á starfsánægjuna. En ytri þættir eins og mikið vinnuálag, mannekla og skortur á stuðningi og hvatningu frá yfirmönnum sem drógu úr starfsánægjunni. Viðmælendur töldu starfsánægju hafa bein áhrif á þjónustugæði. Þegar hjúkrunaarfræðingunum líður vel í starfi, og eru ekki undir miklu álagi, eiga þeir auðveldara með að sinna starfi sínu af fagmennsku, en álag og kulnun geta haft neikvæð áhrif á bæði samskipti og þjónustu. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að heilbrigðisstofnanir leggi áherslu á góðan stuðning, viðurkenningu og næga mönnun til að efla vellíðan og ánægju starfsmanna og þar af leiðandi gæði þjónustunnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Díana Ólöf Hafþórsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52111
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52111

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Díana Ólöf Hafþórsdóttir 1987-. Hvernig speglast starfsánægja hjúkrunarfræðinga í þeirri þjónustu sem þeir veita innan heilbrigðisþjónustunnar?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52111