Back to search

Bifröst University

Heimurinn er hér: hlutverk bókasafna í fjölmenningarlegu samfélagi

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar BA ritgerðar er að skoða þátttöku bókasafna á höfuðborgarsvæðinu í fjölmenningarlegu samfélagi. Í samtímanum eru málefni fólks af erlendum uppruna ofarlega í umræðunni um heim allan og einkennist hún af ólíkri orðræðu um tilvist og örlög þessa samfélagshóps. Orðræðan ber oft keim af fordómum gagnvart þessum þjóðfélagsþegnum sem skapar hættu á að einstaklingarnir upplifi andlega vanlíðan og skort á félagslegum tengslum. Fólksflutningar til Íslands eru tíðari nú en áður og samhliða því hefur skapast þörf fyrir að allir samfélagshópar aðlagist breyttri samfélagsgerð. Út frá niðurstöðum fræðilegra rannsókna, viðtölum við fulltrúa frá Borgarbókasafninu, Bókasafni Kópavogs og Bókasafni Hafnarfjarðar, ásamt viðtölum við fræðimenn og starfsfólk sem vinna í þágu málefna fólks af erlendum uppruna á Íslandi, og þátttökuathugunum, er leitast við að varpa ljósi á hlutverk bókasafna í fjölmenningarlegu samfélagi og verður umræðan sett í samhengi við áhrifamátt skapandi aðferða sem hluta af fjölmenningarstarfi þeirra. Niðurstöðurnar voru greindar út frá fræðilegum grundvelli sem byggir á hugmyndum um þróun á hlutverki bókasafna í að efla félagslegt réttlæti og jöfnuð í þeim tilgangi að stuðla að inngildingu. Rannsóknaniðurstöður sýna annars vegar fram á að bókasöfnin eru meðvituð um hlutverk sitt í samfélaginu og mikilvægi þess að huga í starfi sínu að stöðu fólks af erlendum uppruna á Íslandi, og hins vegar fram á skorti á fjármagni til verkefna sem unnin eru í þágu inngildingar fólks af erlendum uppruna, og þar með talið fjölmenningarstarfs á vegum bókasafnana, en orð og athafnir virðast ekki fara saman.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rósa Björk Marois Ásmundsdóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52106
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52106

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rósa Björk Marois Ásmundsdóttir 1997-. Heimurinn er hér: hlutverk bókasafna í fjölmenningarlegu samfélagi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52106