Back to search

Bifröst University

Vörumerkjabreyting - Hafa íslensk fyrirtæki sem hafa framkvæmt vörumerkjabreytingu upplifað jákvæð áhrif á rekstur og ímynd?

Abstract

dc:description.abstract

Útdráttur: Ritgerð þessi fjallar um vörumerkjabreytingu, Rannsóknarspurning: Hafa íslensk fyrirtæki sem hafa framkvæmt vörumerkjabreytingu upplifað jákvæð áhrif á rekstur og ímynd? Í þessari rannsókn var markmiðið að skoða hvernig íslensk fyrirtæki upplifa áhrif vörumerkjabreytinga, bæði á ímynd sína og rekstur. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferð þar sem tekin voru viðtöl við fulltrúa fyrirtækja og auglýsingastofa sem hafa annað hvort framkvæmt breytingar sjálf eða unnið að slíkum verkefnum. Niðurstöðurnar sýna að vörumerkjabreytingar eru yfirleitt ekki handahófskenndar. Þær tengjast oft breyttri stefnu, nýjum markmiðum eða þörf á að tengja vörumerkið betur við samtímann. Flest fyrirtækin lögðu mikla áherslu á að undirbúa breytingarnar vel, og margir nýttu sér bæði eigindlegar og megindlegar rannsóknir í ferlinu. Þó áhætta fylgi breytingum, sérstaklega ef fólk hefur sterkar tilfinningar til gamla vörumerkisins, töldu flestir viðmælendur breytingarnar hafa haft jákvæð áhrif. Rannsóknin gefur innsýn í hvernig íslensk fyrirtæki huga að vörumerkjum sínum, og sýnir að vel ígrunduð og skipulögð vörumerkjabreyting getur styrkt stöðu fyrirtækja og aukið tengsl við markhópinn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rakel Anna Jónasdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51651
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51651

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rakel Anna Jónasdóttir 1985-. Vörumerkjabreyting - Hafa íslensk fyrirtæki sem hafa framkvæmt vörumerkjabreytingu upplifað jákvæð áhrif á rekstur og ímynd?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51651