Bifröst University
Viðskiptagreind og breytingastjórnun: Hvers vegna eiga fyrirtæki að innleiða viðskiptagreind og hvernig getur breytingastjórnun hjálpað til með innleiðingu?
Abstract
dc:description.abstractHvernig fyrirtæki vinna með gögn geta skipt sköpum þegar það kemur að gagnadrifinni ákvörðunartöku og getur sá eiginleiki hjálpað fyrirtækjum að mynda sérstöðu á markaði og tryggja arðsemi. En til þess að hafa góða stjórn á þessum eiginleika felur það í sér notkun á viðskiptagreind. Að innleiða slíka tækni getur valdið fyrirtækjum frekari vandræðum ef hún er ekki innleidd á skilvirkan hátt þar sem breytingar eru og verða ávallt áhyggjuefni fyrir starfsfólk fyrirtækja. Svo að slík innleiðing gangi sem best getur breytingastjórnun sinnt því mikilvæga hlutverki að tryggja skilvirkari breytingu, takmarka höfnun starfsfólks og auka líkur á samþykki breytingarinnar. Þessi rannsókn hefur það markmið að skoða hvernig breytingastjórnun og hennar aðferðafræði getur aðstoðað stjórnendur fyrirtækja í að innleiða viðskiptagreind í sínum fyrirtækjum. Með niðurstöðum í þessari rannsókn sækist rannsakandinn eftir því að öðlast betri skilning á innleiðingu og notkun viðskiptagreindar og hvaða breytingastjórnunar aðferðir geta verið áhrifaríkar við innleiðingu á viðskiptagreind. Að lokum verður varpað ljósi á mikilvægi breytingastjórnarinnar við innleiðingu á viðskiptagreind og koma með ábendingar til stjórnenda sem geta nýtt sér þegar þeir vilja fara í þá vegferð að innleiða viðskiptagreind í sín fyrirtæki. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að fyrirtæki eiga að innleiða viðskiptagreind í sinn daglega rekstur til þess að fá betri yfirsýn á starfsemi fyrirtækisins, gefa stjórnendum þau tól til þess að geta tekið gagnadrifnar ákvarðanir og öðlast ákveðna forspá um stefnu fyrirtækisins. Rannsóknin bendir á að það koma upp hindranir og áskoranir við innleiðingu á viðskiptagreind, svo sem skortur á þekkingu stjórnenda, tæknilæsi starfsmanna, tæknilegar takmarkanir o.fl. Eftir greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar sést að svona innleiðingaverkefni snýst meira um fólk heldur en tækni og þar að leiðandi kemur fram að breytingastjórnun getur spilað lykilhlutverk til þess að tryggja að innleiðing á viðskiptagreind gangi vel fyrir sig þar sem breytingastjórnun snýst um fólk. Lykilhugtök: Viðskiptagreind, gögn, hreinleiki gagna, gagnadrifnar ákvörðunartökur, breytingastjórnun, ADKAR líkan, greining á andstæðum kröftum, átta-þrepa líkan kotter‘s, skuldbindingakort, hagsmunaaðilakort, mismunandi stig tilfinninga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Atli Rafn Ómarsson 1995-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51367
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51367