Back to search

Bifröst University

Landspítali og skipuritsbreytingar: Hafa tíðar skipuritsbreytingar í kjölfar forstjóraskipta á Landspítala áhrif á starfsánægju og starfsöryggi stjórnenda með þríþætta ábyrgð á klínískum einingum?

Abstract

dc:description.abstract

Landspítali varð til við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Ríkisspítala árið 2000. Frá þeim tíma hafa fimm einstaklingar gengt starfi forstjóra, auk afleysara. Skipuritsbreytingar hafa fylgt forstjóraskiptum. Höfundur hefur starfað á Landspítala frá árinu 2006. Vegna starfssviðs síns hefur höfundur óhjákvæmilega orðið vitni að umræðum og vangaveltum stjórnenda og starfsmanna, um gagnsemi og skynsemi þeirra skipuritsbreytinga sem framkvæmdar hafa verið hverju sinni. Það kom fljótt upp í huga höfundar, er kom að því að velja viðfangsefni fyrir lokaverkefni, að kanna hvort þessar breytingar hefðu raunveruleg áhrif á stjórnendur eða hvort þetta væru bara fyrstu viðbrögð við breytingum. Höfundur ákvað að afmarka sig við að kanna hvort breytingarnar hefðu áhrif starfsánægju og starfsöryggi stjórnenda með þríþætta ábyrgð á klínískum einingum. Framkvæmd var bæði eigindleg og megindleg rannsókn þar sem stuðst var við kenningar um hvatningu, markmiðasetningu og þá þætti sem hafa áhrif á starfsánægju og starfsöryggi Í verkefninu er farið yfir tilurð Landspítala, þá sem gengt hafa stöðu forstjóra, eðli og inntak skipuritsbreytinganna, auk hlutverks forstjóra. Niðurstöður megindlegu rannsóknarinnar segja að starfsöryggi og starfsánægja hafi ekki minnkað og starfsfólk er stolt af störfum sínum. Hins vegar má lesa út úr niðurstöðum að bæta megi upplýsingagjöf og markmiðasetningu í aðdraganda skipuritsbreytinga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María Guðmundsdóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51364
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51364

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Guðmundsdóttir 1970-. Landspítali og skipuritsbreytingar: Hafa tíðar skipuritsbreytingar í kjölfar forstjóraskipta á Landspítala áhrif á starfsánægju og starfsöryggi stjórnenda með þríþætta ábyrgð á klínískum einingum?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51364