Bifröst University
Hvaða áskoranir og tækifæri upplifa stjórnendur og fagfólk í tengslum við atvinnuþátttöku einstaklinga með einhverfu á íslenskum vinnumarkaði?
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á þær áskoranir og tækifæri sem felast í ráðningu og stuðningi við einstaklinga með einhverfu á íslenskum vinnumarkaði. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka sem styðja við atvinnuþátttöku þessa hóps. Atvinna skiptir miklu máli fyrir alla, en einstaklingar með einhverfu standa oft frammi fyrir hindrunum við inngöngu á vinnumarkað og við að halda sér þar. Fjallað er um einkenni einhverfu í tengslum við atvinnu, mikilvægi stuðnings og hvernig fjölbreytileiki getur skapað virði á vinnustað. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferð þar sem tekin voru sex viðtöl: fjögur við fagfólk úr félagasamtökum og opinberum úrræðum og tvö við stjórnendur fyrirtækja sem hafa reynslu af ráðningu einstaklinga með einhverfu. Niðurstöður sýna að þrátt fyrir jákvæða þróun og góð dæmi um sérsniðnar lausnir er skortur á sýnileika, fyrirmyndum og sveigjanlegum ráðningarferlum enn mikil hindrun. Viðmælendur bentu á mikilvægi aukins stuðnings, einstaklingsmiðaðra úrræða og fræðslu á vinnustöðum til að auka þátttöku og velferð einstaklinga með einhverfu á vinnumarkaði. Eitt af því sem helst var nefnt sem lausn er þörfin á að þróa nýjar og aðgengilegri leiðir gegnum ráðningarferli til að tryggja að hæfni einstaklinga með einhverfu fái að njóta sín, jafnvel þótt hefðbundið viðtalsform henti ekki.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Heiðar Róbert Birnuson 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50905
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50905