Back to search

Bifröst University

Endurmörkun vörumerkja: Í hverju felst árangursrík endurmörkun íslenskra vörumerkja og hverjar eru helstu hindranir?

Abstract

dc:description.abstract

Endurmörkun vörumerkja hefur orðið sífellt mikilvægari þáttur í stefnumótun fyrirtækja í kjölfar hraðra breytinga á markaði og samfélagi. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á það hvernig íslensk fyrirtæki nálgast endurmörkun, hvaða ástæður liggja að baki slíkum breytingum og hvernig neytendur koma þar við sögu. Rannsóknin byggir á eigindlegum viðtölum við stjórnendur og sérfræðinga úr íslenskum fyrirtækjum sem hafa reynslu af endurmörkun. Stuðst var við viðtalsramma og þemagreiningu til að greina gögnin. Niðurstöðurnar sýna að árangursrík endurmörkun byggir á skýrri framtíðarsýn, vönduðum undirbúningi, virku samtali við hagsmunaaðila og þátttöku starfsfólks og neytenda. Hindranir í ferlinu tengjast meðal annars skorti á tíma og fjármagni, innra viðnámi og óljósum markmiðum. Rannsóknin dregur fram mikilvægi þess að nálgast endurmörkun sem þróunarferli fremur en afmarkað verkefni og að samspil innri menningar og ytri ásýndar sé lykillinn að varanlegum árangri. Rannsóknin veitir hagnýta innsýn í hvernig fyrirtæki geta hámarkað árangur endurmörkunar og opnar á frekari umræðu um þátttöku neytenda í mótun vörumerkja. Niðurstöðurnar veita aukinn skilning á endurmörkun í íslensku samhengi og bæta við þá fræðilega umræðu sem þegar er til staðar á því sviði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karen Harpa Kristinsdóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50821
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50821

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karen Harpa Kristinsdóttir 1997-. Endurmörkun vörumerkja: Í hverju felst árangursrík endurmörkun íslenskra vörumerkja og hverjar eru helstu hindranir?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50821