Back to search

Bifröst University

List eða léttmeti? Upphaf óperu- og óperettuflutnings á Íslandi 1931-1949

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsókn fjallar um upphaf óperu- og óperettuflutnings á Íslandi og miðast við tímabilið 1931–1949. Áhersla er lögð á að greina hvaða skilyrði og hvatar leiddu til þess að þessi tegund tónlistar- og leiklistarstarfsemi hófst hér á landi og síðan hvernig hún þróaðist. Skoðað er hvernig fyrstu óperu- og óperettusýningunum var tekið og hvort frekar var litið á þær sem list eða skemmtun. Sérstök áhersla er lögð á ólíka aðkomu tónlistar- og leiklistargeirans að uppsetningu verkanna og hvaða áhrif hún hafði á þróun listformsins. Notast er við kenningar Pierre Bourdieu um vettvang (field), auðmagn (capital) og veruhátt (habitus) til að greina mögulega tilurð sérstaks vettvangs óperu og óperettu á þessu tímabili. Rannsóknin byggir á fjölbreyttum frumheimildum, þar á meðal dagbókum, dagblaðaumfjöllunum, ævisögum og fundargerðum, m.a. frá Leikfélagi Reykjavíkur og Tónlistarfélaginu sem bæði spiluðu stórt hlutverk í þessari sögu. Markmiðið er að varpa ljósi á fyrstu skref þessa listforms á Íslandi og hvaða áhrif þau höfðu á íslenska tónlistar- og leikhúsmenningu. Lykilorð: Bourdieu, óperur, óperettur, tónlistarsaga, leiklistarsaga

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjarni Thor Kristinsson 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50756
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50756

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarni Thor Kristinsson 1967-. List eða léttmeti? Upphaf óperu- og óperettuflutnings á Íslandi 1931-1949. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50756