Bifröst University
Að þrífast í klassík: Starfsumhverfi klassísks tónlistarfólks á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractÞessi rannsókn fjallar um starfsumhverfi klassísks tónlistarfólks á Íslandi. Markmið hennar er að greina hvaða ytri og innri þættir styðja við sjálfbæran starfsferil og hvernig tónlistarmenntun getur mætt breyttum aðstæðum í starfsumhverfi. Ytri áhrifaþættir á borð við menningarstefnu og stuðningskerfi voru skoðaðir og greindir. Jafnframt er fjallað um fyrirliggjandi rannsóknir á starfsumhverfi klassísks tónlistarfólks á 21. öldinni og rannsóknir um þróun tónlistarnáms á háskólastigi. Þá var lögð fyrir megindleg spurningakönnun meðal klassísks tónlistarfólks sem starfar á Íslandi þar sem starfsumhverfi og áhrifaþættir voru rannsakaðir. Niðurstöður sýna að starfsumhverfi klassísks tónlistarfólks á Íslandi er flókið, óstöðugt og einkennist af fjölbreyttum tekjustraumum, brotakenndu stuðningsumhverfi og takmörkuðum tækifærum til fastra starfa. Opinber stuðningur gegnir lykilhlutverki en hann er háður pólitískum ákvörðunum og því er stöðugleiki í starfsumhverfi ekki fyllilega tryggður. Rannsókn leiddi ennfremur í ljós að margvísleg hæfni virðist mikilvæg til að þrífast í starfsumhverfinu. Þættir eins og hæfni til að afla styrkja, byggja upp og virkja tengslanet og að geta sinnt fjölbreyttum verkefnum eru taldir lykilatriði. Þá kemur fram að frumkvöðlastarfsemi skiptir miklu máli þegar kemur að því að ná árangri í starfsumhverfinu. Í niðurstöðum er bent á að fagleg sjálfsmynd tónlistarfólks sé í þróun þar sem aukin áhersla er á fjölhæfni, frumkvöðlahugsun og samfélagslega þátttöku. Að auka tengsl tónlistarnáms á háskólastigi og starfsumhverfis er aðkallandi og erlendar rannsóknir undirstrika mikilvægi þess. Þátttakendur megindlegrar könnunar lýsa skýrum þörfum fyrir þróun tónlistarnáms sem undirbýr tónlistarfólk fyrir síbreytilegt starfsumhverfi samtímans. Lykilorð: Klassískt tónlistarfólk, starfsumhverfi, fagleg sjálfsmynd, tónlistarnám á háskólastigi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Lilja Dögg Gunnarsdóttir 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50716
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50716