Back to search

Bifröst University

Áhrif söluhvata á kaupákvarðanir

Abstract

dc:description.abstract

Söluhvatar eru aðferðarfræði markaðssamskipta sem fyrirtæki nota og geta haft áhrif á kauphegðun neytenda. Söluhvatar geta haft mismunandi áhrif á kaupákvarðanir neytenda og snýst rannsóknin um það hvernig þeir hafa áhrif og hverjir þeirra eru áhrifaríkastir. Söluhvatar spila stórt hlutverk í kaupákvarðanatöku neytenda. Þeir eru aðferðir sem hægt er að nota til þess að spila á þarfir og tilfinninginar neytenda. Söluhvatar geta breytt því hvernig neytendur sjá verðgildi eða virði vörunnar eða þjónustunnar sem getur haft áhrif á kaupákvörðun þeirra. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvaða söluhvatar hafi mest áhrif á kaupákvarðanir neytenda og á hvaða hátt. Einnig var markmiðið að skoða hvort að mismunandi aldurshópar bregðast misjafnlega við söluhvötum og að hvaða leyti. Við framkvæmd þessarar rannsóknar var notast við blandaða rannsóknaraðferð þar sem notaðar voru bæði eigindlegar og megindlegar aðferðir. Eigindlega rannsóknin var í formi rýnihópaviðtala þar sem rannsakendur hittu tvo hópa þátttakenda. Megindlega rannsóknin var í formi spurningakönnunar þar sem stærra úrtak þátttakenda var fengið til ítarlegri greiningar. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að áhrif söluhvata væru mikil og að mismunandi aldurshópar bregðast misjafnlega við þeim. Afsáttur var sá söluhvati sem neytendur sögðu hafa mest áhrif á kaupákvörðunartöku þeirra og var sama svörun á milli allra aldurshópa. Það er von höfunda að niðurstöður rannsóknarinnar nýtist fyrirtækjum og veiti þeim innsýn í hvernig söluhvatar geta haft áhrif á kauphegðun neytenda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Hugrún Líf Einarsdóttir 2000-
  • Sara Ísabella Guðmundsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50683
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50683

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hugrún Líf Einarsdóttir 2000-; Sara Ísabella Guðmundsdóttir 1999-. Áhrif söluhvata á kaupákvarðanir. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50683