Bifröst University
Markaðsleg áhrif áhrifavalda á íslenskum markaði í samanburði við erlendan markað
Abstract
dc:description.abstractÞað að nota áhrifavalda þegar kemur að markaðssetningu hefur aukist mjög síðustu misseri og hefur notkun þeirra oft á tíðum verið innspýting í markaðssetningu fyrirtækja. Hægt er að segja að markaðssetning hafi verið öðruvísi fyrir komu internets og samfélagsmiðla þar sem ekki var um marga staði að velja þegar kom að markaðssetningu. Með tilkomu internets og samfélagsmiðla er auðveldara að ná til fleiri viðskiptavina með markvissum markaðssetningarherferðum. Með þessu hefur markaðssetning fyrirtækja breyst mikið á stuttum tíma þar sem valið á því hvenær, hvernig, hvar og hverskonar markaðssetning á að vera til að koma vöru og þjónustu á markað er markvissari. Í dag geta fyrirtæki valið margar leiðir til að markaðssetja sig og þar með er mikilvægt að velja réttu leiðina vegna þess að ef að valið er rangt getur það verið mjög kostnaðarsamt fyrir fyrirtæki. Þar sem um er að ræða margar tegundir af áhrifavöldum sem fyrirtæki geta nýtt sér í markaðssetningu er áríðandi fyrir þau að nálgast rétta áhrifavalda til að koma vörunni á framfæri. Rannsóknarspurningin sem leitast var við að svara og var sem leiðarljós við alla vinnu rannsóknarinnar er: „Hvernig eru íslenskir áhrifavaldar hugsanlega frábrugðnir erlendum áhrifavöldum?“ Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar tekur til viðeigandi fræðigrunns þar sem meðal annars má finna umfjöllun um góða og slæma markaðssetningu, samþætt markaðsskilaboð, vörumerki, vörumerkjaþekkingu og vörumerkjatryggð. Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á muninn á íslenskum og erlendum áhrifavöldum ef hann væri til staðar og hvort íslensk fyrirtæki þurfi að notast öðruvísi við áhrifavalda en erlend fyrirtæki. Notuð var megindleg aðferð sem var byggð á spurningarkönnun þar sem einstaklingar svöruðu spurningum á netinu en rannsókninni var dreift á Facebook. Það fengust 125 svör og niðurstöður rannsóknarinnar voru bornar saman við erlenda rannsókn. Erlenda rannsóknin var gerð af stóru fjölþjóðlegu markaðsfyrirtæki sem heitir Rakuten. Hún var lögð fyrir neytendur í Bandaríkjunum, Ástralíu, Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi. Alls tóku 3600 einstaklingar þátt í könnuninni sem allir höfðu keypt vörur á internetinu. Helstu niðurstöður benda til þess að það sé mikilvægt fyrir fyrirtæki að notast við áhrifavalda í markaðssetningu við ákveðin tilefni. Mest áríðandi sé að þekkja markhóp sinn vel með því að gera markaðsrannsóknir þar sem ekki allir einstaklingar verða fyrir áhrifum áhrifavaldamarkaðssetningar. Lykilorð: vörumerki, áhrifavaldar, áhrifavaldamarkaðssetning, neytendahegðun, samfélagsmiðlar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Tindur Orri Ásbjörnsson 1995-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49218
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49218