Back to search

Bifröst University

Barnamenningarverkefni á sumarhátíðum: frá hugmynd að veruleika

Abstract

dc:description.abstract

Þetta verkefni skoðar skipulagningu og framkvæmd barnamenningarviðburða á sumarhátíðum, með sérstakri áherslu á leiklist og sögustundir sem verkfæri til að efla íslenska tungu og menningarvitund meðal barna. Verkefnið, „Barnamenningarverkefni á sumarhátíðum: Frá hugmynd að veruleika,“ er hannað til að veita skipuleggjendum leiðsögn um hvernig megi skapa áhrifaríka og aðgengilega menningarviðburði fyrir fjölskyldur. Með því að nýta skapandi aðferðir, líkt og leiklist og frásagnir, er markmiðið að virkja börn til þátttöku í íslenskri menningu á spennandi hátt, auk þess að efla sjálfsmynd þeirra og tengsl við íslenskan sagnaarfi. Verkefnið felur í sér heildstæða verkáætlun sem tekur mið af ólíkum þörfum og áhugasviðum mismunandi aldurshópa barna, frá yngstu börnum til unglinga. Einnig er framkvæmd SVÓT-greining sem dregur fram styrkleika, veikleika, tækifæri og ógnanir í tengslum við barnamenningarviðburði á Íslandi. Áhættugreining tekur tillit til aðstæðna eins og fjármögnunaröryggis, veðurtengdra áskorana og mannaflaþarfa. Markhópagreining og tímalína leggja grunn að skipulagningu viðburða og stuðla að markvissri kynningu, meðal annars í gegnum samfélagsmiðla, til að ná til barna og fjölskyldna um allt land. Auk þess veitir verkefnið tillögur að fjármögnun og stuðningi til að tryggja sjálfbærni viðburða, ásamt einföldu en gagnlegu mati á þátttöku og árangri til framtíðarþróunar. Með því að nýta leiklist og sögustundir til að skapa vettvang þar sem börn læra og tjá sig um íslenska menningu, er verkefnið lagt upp sem leiðbeinandi tól fyrir skipuleggjendur menningarviðburða sem vilja efla tengingu barna við íslenskan menningararf á lifandi og skapandi hátt

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásthildur Guðmundsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49209
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49209

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásthildur Guðmundsdóttir 1994-. Barnamenningarverkefni á sumarhátíðum: frá hugmynd að veruleika. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49209