Back to search

Bifröst University

Stytting vinnuvikunnar: Hefur stytting vinnuvikunnar, að mati starfsmanna sveitarfélaga, skilað sambærilegum árangri og hjá ríki og borg?

Abstract

dc:description.abstract

Mikið ákall hefur verið undanfarin ár um það að stytta vinnuvikuna, ekki síst í tengslum við streitu og kulnun og náðist sátt um það í þeim kjarasamningum sem gerðir voru árið 2019 og 2020. Ríkið og Reykjavíkurborg stóðu bæði að tilraunaverkefnum innan nokkurra stofnana hjá sér árin 2015 og 2016 sem miðaði að því að stytta vinnutímann og árangurinn þótti mjög góður. Markmið með þessari rannsókn er að kanna upplifun starfsmanna sveitarfélaga af styttingu vinnuvikunnar sem samið var um árið 2020 og hvort náðst hafi sambærilegur árangur með styttingunni og náðist hjá ríkinu og Reykjavíkurborg. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð og var sendur póstur á öll sveitarfélög með boð um þátttöku í rannsókninni. Alls gáfu ellefu sveitarfélög kost á þátttöku. Send var út spurningakönnun á alla starfsmenn þeirra sveitarfélaga og bárust alls 208 svör. Niðurstöður rannsóknarinnar endurspegla ekki að öllu leyti árangur ríkis og borgar þó almennt séð hafi verið ánægja með styttinguna. Það sem helst ber að nefna varðandi niðurstöðurnar er að störf innan sveitarfélaga eru mjög fjölbreytt og einnig er misjafnt hvernig staðið var almennt að innleiðingunni. Rannsakandi telur mikilvægt að haldið verði áfram að kanna árangur af styttingu vinnuvikunnar hjá sveitarfélögum og að starfsmenn komi meira að borðinu þegar kemur að því að skipuleggja og innleiða styttingu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Sigríður Hjálmarsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49204
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49204

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Sigríður Hjálmarsdóttir 1984-. Stytting vinnuvikunnar: Hefur stytting vinnuvikunnar, að mati starfsmanna sveitarfélaga, skilað sambærilegum árangri og hjá ríki og borg?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49204