Back to search

Bifröst University

Stjórnun í gegnum náttúruhamfarir: Hvað getum við lært af reynslu stjórnenda og starfsfólks Grindavíkurbæjar?

Abstract

dc:description.abstract

Þann 10. nóvember 2023 var Grindavíkurbær rýmdur og lýst var yfir neyðarstigi í bænum. Allir íbúar bæjarins þurftu að yfirgefa heimili sín og eru flestir þeirra enn ekki aftur farnir heim. Við þennan atburð hófst tímabil sem fæstir áttu von á að gæti gerst. Stjórnendur Grindavíkurbæjar þurftu þar að fóta sig í gjörbreyttum aðstæðum. Í svona miklum breytingum reynir á stjórnendur ekki aðeins að finna nýjan takt í breyttum aðstæðum heldur einnig að styðja við starfsfólk sitt. Þar reynir á getur þeirra í breytingastjórnun, krísustjórnun ásamt mikilvægi tilfinningagreindar. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða áhrifaþætti á ákvarðanatöku stjórnenda ásamt upplifun og reynslu þeirra og starfsfólks þeirra af stjórnun á þessu tímabili. Þannig er hægt að draga lærdóm af þessu tímabili sem nýtist sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum í framtíðinni. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem gögnum var safnað í gegnum 10 viðtöl, fjögur við stjórnendur og sex við starfsfólk. Viðtölin voru síðan greind með þemagreiningu. Fram kom að helstu áhrif á ákvarðanir voru umhverfislegar breytur náttúruhamfaranna en þó mátti greina efnahagsleg, lagaleg og félagsleg áhrif. Þegar kom að upplifun og reynslu voru greind fimm þemu sem voru: Mismunandi upplifun á upplýsingagjöf og samvinnu/samskiptum eftir stöðu og starfi viðmælenda, mikilvægi þess að hafa góðan jafningjastuðning og samfélagslega aðstoð þegar þörf er á, og mikilvægi þess að læra af þessari reynslu til þess að gera betur í undirbúningi fyrir mögulegar náttúruhamfarir í framtíðinni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sara Sigurðardóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49192
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49192

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sara Sigurðardóttir 1989-. Stjórnun í gegnum náttúruhamfarir: Hvað getum við lært af reynslu stjórnenda og starfsfólks Grindavíkurbæjar?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49192