Bifröst University
EKKO ferlar innan opinberrar stjórnsýslu. Hver er reynsla stjórnsýslunnar af framkvæmd EKKO ferla innan ríkisstofnana?
Abstract
dc:description.abstractHér eftir verður greint frá niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar á reynslu hins opinbera af framkvæmd EKKO ferla innan ríkisstofnana. Þessir ferlar eru enn tiltölulega nýjir af nálinni og felst hagnýtt og fræðilegt gildi þessa verkefnis því fyrst og fremst í því að skoða stöðu þeirra innan stofnana og hvort þeir skili þeim árangri að starfsfólk upplifi sig öruggt með að stíga fram. Út frá því verður metið hvort núverandi ferlar séu á réttri leið eða hvort tilefni sé til úrbóta. Markmiðið er þannig að leggja lóð á vogarskálar stjórnsýslunnar til upprætingar á EKKO málum innan ríkisstofnana. Höfundur þessa verkefnis hefur reynslu af því að starfa innan stjórnsýslunnar og sem hópaleiðari hjá Stígamótum. Höfundur hefur jafnframt brennandi áhuga á mannauðsmálum og taldi því vel við hæfi að rannsaka reynslu sem hefur skapast innan stjórnsýslunnar með því breytta verklagi sem leiddi af reglugerð nr. 1009/2015. Viðmælendur rannsóknarinnar voru mannauðsstjórar innan ríkisstofnana eða starfsmenn mannauðssviða með áralanga starfsreynslu í mannauðsmálum og framkvæmd EKKO ferilsins. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að til staðar er hópur starfsfólks innan ríkisstofnana sem vantreystir stjórnendum til að taka á sínum málum ef það verður fyrir EKKO tengri hegðun. Það hefur áhyggjur af því að mál þeirra geti haft neikvæð áhrif á framtíð þeirra innan vinnustaðarins og efast jafnvel um hvort mál þeirra séu nægilega alvarleg til að þau eigi erindi á borð stjórnenda. Af þessum sökum er til hópur starfsmanna sem annaðhvort treystir sér ekki til að stíga fram með mál sín eða gerir það seint. Viðmælendur lögðu áherslu á mikilvægi góðrar vinnustaðamenningar og forvarna og var fjallað um reynslu þeirra í því samhengi sem hluta af upprætingu EKKO mála. Einnig var því velt upp að hvaða marki sé raunverulega hægt að meta áhrif þessara ferla út frá tiltækum gögnum málaflokksins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Tanja Andersen Valdimarsdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49186
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49186